156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni og hafandi unnið með honum um tíma þá veit ég að við erum sammála um býsna margt. Ég gleymdi kannski að svara einum hluta af fyrirspurninni hér áðan sem laut tengslanetinu, þ.e. foreldrum, börnum og mökum barna. Ég er alveg sammála því að það eigi að vera eitthvert regluverk þar utan um og ég er kannski meira að gera grín að því þegar tengdabörn fá bréf um að nú séu þau skráð á þennan lista og ungabörn hafa fengið þetta bréf og þetta er svolítið drastískt. Ég man það sjálf, virðulegur forseti, þegar mín börn fengu þetta bréf og þau bara sögðu: Mamma, hvað er þetta eiginlega? En ég er algerlega sammála því að þau sem eru okkur nátengd þurfa að vera undir þessu eftirliti og ég held reyndar að eftirlitið hjá okkur sé það gott að algjörlega óháð því þótt viðkomandi væri ekki tengdur þingmanni hér inni og fengi millifærslur upp á einhverjar upphæðir erlendis frá, þá myndu kvikna viðvörunarljós í bankanum. (Forseti hringir.) Ég alla vega heyrði dæmi þess í síðustu kosningabaráttu þar sem fólk var að kvarta yfir því, fólki fannst vera mjög mikið fylgst með þessu. (Forseti hringir.) Og ég er bara hrifin af því. Það á enginn að komast upp með það að borga ekki skatta eða þiggja greiðslur frá einhverjum erlendum aðilum (Forseti hringir.) án þess að greiddir séu af því skattar og/eða tilskilin gjöld.

(Forseti (EÁs): Ég bið hv. þingmenn að virða ræðutíma.)