156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:38]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir virkilega góða umræðu og hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sína ræðu. Það var ekki síður áhugavert að heyra það samtal sem átti sér stað í andsvörum við hv. þm. Pawel Bartoszek. Ég held að þetta kjarni svolítið það sem við erum að tala um. Við erum, held ég, öll sammála um það að við viljum reyna að tryggja gagnsæi og við viljum reyna að tryggja það að lögin nái markmiðum sínum. Hv. þingmaður aftur á móti nefndi dæmi þrátt fyrir að vera þingmaður í forréttindastöðu, ég get alveg tekið undir það, og við þurfum stundum að hoppa í gegnum einhverja aukahringi og ég tek því bara af miklu æðruleysi í ljósi þess hlutverks sem maður sinnir á hverjum tíma. En almenningur er auðvitað í mjög mörgum tilfellum að svara alls kyns könnunum og veita upplýsingar til þess að mæta þeim kröfum sem við erum búin að setja á almenning. Þess vegna tel ég það mjög mikilvægt og ég nefndi það líka í andsvari við ræðu hv. þm. Vilhjálms Árnasonar, og vil spyrja hv. þingmann: Hvernig getum við tryggt það ferli hér á þingi að við þurfum ekki að vera að fara í sérstaka skýrslubeiðni eða í einhvers konar meiri háttar verkefni til að fá, leyfi ég mér að segja, endurgjöf á það hvernig þessi löggjöf er að virka í rauninni? Á blaði er hún oft skiljanleg þingmönnum og löggjafanum og jafnvel framkvæmdarvaldinu, en síðan bara kemur í ljós, ég leyfi mér að segja, (Forseti hringir.) virðulegi forseti, í praxís hvernig hún reynist. Hvernig getum við reynt að finna út úr því, hv. þingmaður?