156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:41]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðrik Friðrikssyni fyrir þessa spurningu og þetta andsvar. Ég var einmitt að vísa í það að við hefðum í nefndaráliti hér síðast þegar við fjölluðum um breytingu á þessum lagabálki, þ.e. um peningaþvættishliðina, í allsherjar- og menntamálanefnd, kallað eftir úttekt frá ráðuneytinu á þessum málum. Ég held að það sé kannski hluti af eftirlitshlutverki okkar þingmanna að fylgjast með framkvæmdarvaldinu og fylgjast með því hvort framkvæmdin sé í anda laganna og auðvitað, ef það þarf að laga til í lögunum, þá er það líka okkar að breyta þeim. Við gerum þetta oft í fyrirspurnum og skýrslubeiðnum. En hin leiðin hefur líka gjarnan verið notuð og hún er sú sem ég hef alla vega beitt eða lagt til einhvern tímann og það er bráðabirgðaákvæði sem kallar á úttekt á lagabálknum. Ég minnist þess, bara út af því að hér fyrr í vikunni var hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra að bera fram frumvarp um breytingar á Menntasjóði námsmanna, að þegar það frumvarp var gert að lögum, sem voru svona heildarendurskoðun á Menntasjóðnum, var líka lagaskylda á ráðherra og ráðuneytinu að gera úttekt á lögunum og framkvæmd þeirra og hvernig tekist hefði til. Það er einmitt eitt af því sem við bíðum eftir í þeim efnum, að fá fram enn frekari breytingar á lögunum í anda þess sem kom fram í þeirri úttekt og skýrslu. Ég veit ekki hvort við þurfum bara almennt að fara að hugsa um það hér á löggjafarþinginu þegar verið er að setja löggjöf, einhvers konar heildarendurskoðun á einhverju, að setja inn bráðabirgðaákvæði sem kallar eftir slíkri úttekt. Það hefði mögulega farið vel á því í þessu dæmi. Það sem kannski flækir þessi mál sérstaklega er hversu mörg ráðuneyti þau falla undir (Forseti hringir.) eins og ég var að útskýra hér áðan. Þetta hefur verið undir dómsmálaráðuneytinu, þetta hefur verið undir fjármála- og efnahagsráðuneytinu og mögulega fleiri ráðuneytum.