156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:43]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að eiga orðastað við mig varðandi þetta. Mig langar til að spyrja þingmanninn út í þessar íþyngjandi kröfur sem við setjum, sem ég tel vera eðlilegar, varðandi marga þætti og þær leggjast mismunandi á fólk eftir því hvaða hlutverkum það gegnir í samfélaginu og ég geri engar athugasemdir við það. Þá horfir maður til að mynda til bankastarfsemi og við getum horft til Keflavíkurflugvallar hvað það varðar þar sem við vorum með innlenda bankastarfsemi af hálfu Arion banka og síðan er farið í útboð og nú er erlendur aðili kominn með einhvers konar skiptimyntarstarfsemi þar. Ég þekki ekki til þess aðila en það er t.d. mjög gott dæmi um það sem almenningur horfir á og veltir fyrir sér: Er það í lagi? Ég fer hérna í gegnum margar blaðsíður af athugasemdum en nú er allt í einu erlendur aðili kominn á landamærin. Hvað reglur gilda um það? Þess vegna spyr ég, hvort sem það er bankastarfsemi eða einstaklingar (Forseti hringir.) sem þurfa að gefa upp ákveðnar upplýsingar: Hvernig getum við tryggt það að við séum á sambærilegum stað og nágrannaþjóðir okkar?