156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:45]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Ég held að þetta sé einmitt mjög áhugaverð vangavelta. Ég var að segja hérna áðan að ég held að það sé ágætiseftirlit innan bankanna með fleirum en falla undir þennan lista þannig að þetta má ekki hljóma eins og maður sé bara með eitthvert væl, verandi í þessari forréttindastöðu, út af því að þurfa að hoppa í gegnum einhverja hringi og svara spurningum um okkar nánustu. Það var ekki punkturinn í ræðunni heldur að benda á ákveðinn fáránleika sem kann að vera til staðar. Mér finnst þessi vangavelta hér hjá hv. þingmanni vera eitthvað sem við þyrftum að skoða nánar. Nú bara átta ég mig t.d. ekki á því hvort og hversu mikla fjármuni maður getur tekið út úr hraðbanka í Leifsstöð núna, það eru alla vega töluverðar takmarkanir á því almennt þegar maður fer í banka og tekur út gjaldeyri ef það fer yfir einhverja upphæð. Ég er nú ein af þeim sem nota bara alltaf símann sinn alls staðar þannig að mér dettur ekki lengur í hug að fara að taka út peninga. En ég held að þetta sé eitthvað sem væri áhugavert að velta fyrir sér.