156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[14:46]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld, um aðgerðir gegn peningaþvætti, viðurlög og fleira en almennt gengur þetta undir heitinu bandormur. Þetta er svolítið sérstakt fyrirbæri eins og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir kom inn á hér áðan. Hér úir og grúir oft af málum sem eru algjörlega óskyld. Það sem eru kannski helstu mál í þessu frumvarpi, þessum bandormi, eru breytingar á tollalögum til að samræma íslenska löggjöf við tilmæli FATF og koma í veg fyrir að Íslendingar lendi aftur á gráa listanum, það er tilgangurinn með þessu, og að tollyfirvöld fái auknar heimildir til að leita í farangri án viðveru eiganda, ákvæði síðan um skattfrelsi styrkja til hreinorkubílaeigenda framlengt út 2027 og fjórði punkturinn í þessu frumvarpi er jöfnunargjaldið vegna dreifingar raforku, það er hækkað. Eins og sjá má af þessum fjórum atriðum eru þau meira og minna ótengd og fátt sameiginlegt með þeim. Þess vegna er ég sammála hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. Þetta er alltaf svolítið sérstakt þegar við erum að ræða þessi mál.

Í andsvörum við hæstv. fjármálaráðherra um þetta frumvarp kom ég aðeins inn á að það kemur mér gríðarlega á óvart sem er að koma fram með heimildir til tollyfirvalda um að fá að leita í innrituðum farangri á flugvöllum, að hér sé loksins gefin heimild fyrir því að það sé hægt að leita og skoða farangurinn án þess að kalla til viðkomandi farþega sem á þennan farangur. Það kemur verulega á óvart að við séum að fást við þetta árið 2025 í gegnum löggjöf. Það væri fróðlegt að fá fram hvernig þetta hefur verið annars staðar. Maður þekkir það í gegnum árin að oft hefur komið svona miði á farangurstöskuna hjá manni um að töskurnar hafi verið opnaðar og leitað í þeim. Ég held að mörgum finnist þetta jafn fyndið og mér, jafnvel í þessum sal, hvernig hafi verið staðið að þessum málum hjá okkur. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á í sínu máli fyrr þegar ég ræddi þetta, kom með þetta í andsvörum, þá fór hann að hugsa um gömlu flugstöðina í Keflavík og þá tíma sem þá voru, áður en núverandi Leifsstöð var tekin í notkun að mig minnir 1986 eða 1987 og í dag þegar farþegafjöldinn getur kannski verið 8, 9, hátt í 10 milljónir farþega á ári, að við skulum ekki hafa verið komin með þetta inn í löggjöfina er náttúrlega ótrúlegt að mati þess sem hér stendur. Það væri fróðlegt að afla frekari upplýsinga um það hvernig þetta yfirleitt gat gerst. Ég verð að segja það. Ég er svolítið áhugasamur um að fá þann lagagrunn sem við höfum byggt á og af hverju og síðan í samanburði við aðrar nágrannaþjóðir og almennt hvað gerist í þessum málum hjá tollyfirvöldum vítt og breitt um heim. Og þetta allt saman tengist náttúrlega kannski sérstaklega þá peningaþvættinu og að við lendum ekki aftur á þessum svokallaða gráa lista eins og við lentum á fyrir nokkrum árum og skapaði vandamál víða, og gott að koma þessu á hreint og laga til í þessum málum.

Varðandi síðan jöfnunargjaldið, varðandi dreifikostnað og þá sérstaklega í dreifbýlinu, sem er kannski svona stærsti — já, þetta eru stór mál og allt en almennt á Íslandi hugsa ég að það sé nú stærsta málið í því sem við erum að fást við hér í þessu frumvarpi og held að það sé kannski það sem margir hafa áhuga á. Það virðist vera kannski að meðalheimili á Íslandi, samkvæmt útreikningum, gæti þá í þéttbýli verið að borga 131 kr. á mánuði án virðisaukaskatts aukalega vegna þess jöfnunargjalds sem hér er sett á. Aftur á móti tryggir sú hækkun fulla niðurgreiðslu kostnaðar vegna dreifingar raforku í dreifbýli sem þýðir að raforkukostnaður meðalheimilis í dreifbýli lækkar um tæplega 1000 kr. á mánuði án virðisaukaskatts. Ég hygg eftir minni að það sé bæði þetta jöfnunargjald og síðan aftur sérstakar fjárheimildir úr ríkissjóði sem koma líka til.

Það kemur fram í frumvarpinu að heildartekjur af jöfnunargjaldinu verði 2200 millj. kr. árið 2025 í stað um 1550 millj. kr. miðað við óbreytt jöfnunargjald allt árið 2025. Þar sem virðisaukaskattur leggst á jöfnunargjaldið mun hækkun þessi einnig hafa jákvæð hliðaráhrif á tekjur ríkissjóðs sem nemur 156 millj. kr. í auknar tekjur af virðisaukaskatti vegna ársins 2025. Þetta jöfnunargjald var sett í lög árið 2015, ef ég man rétt. Auðvitað hefur sá sem hér stendur og mjög margir þingmenn haft mikinn áhuga á þessu, enda sanngirni í því að dreifikostnaðurinn í dreifiveitunum — það eru fimm dreifiveitur á Íslandi og tvær þeirra sinna fyrst og fremst hinum dreifðu byggðum. Það er Rarik, Rafmagnsveitur ríkisins, og síðan aftur Orkubú Vestfjarða. Árið 2020, þegar sá sem hér stendur sat í hv. atvinnuveganefnd, var mikil vinna lögð í þessi mál í þeirri nefnd og mikill tími og skoðun á þessum málum og mikil vinna lögð í nefndarálit með breytingartillögu við þá vinnu sem þar var inni á sínum tíma og eins og kannski þetta gjald snýst um, að standa straum af jöfnun kostnaðar vegna þeirrar raforku sem fer um dreifiveitur raforku til almennra notenda. Þarna vorum við reyndar að fást við frumvarp til laga um breytingu á lögum um jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku, nr. 98/2004, og verðlagshækkun. Eins og var kannski komið inn á áðan í ræðu minnir mig hv. þm. Bergþórs Ólasonar hefur þetta verið höfrungahlaup ár eftir ár, eða einhvers konar eilífðarvél eins og hv. þingmaður minntist á í sinni ræðu. Það hefur reglulega verið farið í gegnum fjárlög og komið styrkir til þess til að laga til í þessum málum en alltaf hefur samt vonin verið raunverulega frekar og vitneskja meðal þingmanna að þetta endist kannski ekki lengur og oft hefur manni fundist halla verulega varðandi dreifikostnaðinn kannski bara á tveim, þrem árum.

Orkubú Vestfjarða en sérstaklega Rarik hefur verið í þessu gríðarlega stóra og mikla átaki eftir, eins og ég kom inn á hér fyrr í dag, þessi slæmu veður sem urðu sérstaklega 1991 og 1995 þegar urðu gríðarleg áföll í raforkukerfinu, í dreifikerfi Rariks. Þá var farið í þetta verkefni að koma strengjum í jörð, mjög metnaðarfullt verkefni, að koma lágspennta kerfi Rariks í jörð og þá var stefnt að því að klára þetta á 35, 40 árum. Það var farið af stað í það verkefni eftir óveðrið 1995 og nú er Rarik með þau áform að það verði búið að klára þau verkefni 2035 og með þessu að koma öllu kerfinu í strengi í jörð og síðan aftur að þriggjafasavæða kerfið til að ýta undir möguleika í sveitum landsins og dreifbýlinu. Varðandi atvinnustarfsemi og annað þá er það gríðarlega mikilvægt, eins og við þekkjum í dag í kringum búreksturinn vítt og breitt og náttúrlega sérstaklega í mjólkurframleiðslunni, það er gríðarleg þörf á því að hafa gott raforkukerfi í sveitunum til að allt fari vel fram með róbótum og öllu því, þeirri tækni og tólum sem þarf í mjólkurframleiðslunni t.d. Það má segja kannski að það sé gríðarlegur árangur núna að vera komin með 80% af kerfinu í jörð og hefur náttúrlega leitt það af sér að t.d. aðventustormurinn í desember 2019 varð ekki eins alvarlegur, á Norðurlandi sérstaklega, eins og annars hefði orðið ef það hefði ekki verið farið í þetta átak vegna þess að þá grunar mig nú að það hefði lítið verið eftir af kerfinu miðað við óveðrið sem gekk þá yfir, og ísingarveður, um norðanvert landið. Þannig að þetta er það sem snýr að þessu.

Það hefur komið fram hjá hv. þingmönnum í dag í nokkrum ræðum að þetta er greinilega ekki hin endanlega lausn sem verið er að ræða í þessu frumvarpi. Ég vil hins vegar vera jákvæður gagnvart þeim tilgangi sem kemur hér, með að hækka jöfnunargjaldið og reyna aðeins að jafna út. Það verður samt gríðarlegur munur á orkuverðinu til notenda í dreifbýli og í þéttbýlinu. Höfuðborgarsvæðið t.d. og Akureyri búa við mun ódýrari raforku en dreifbýlli svæði þar sem oft á tíðum er náttúrlega verið að nýta líka orkuna til rafhitunar. U.þ.b. 10% af samfélaginu njóta ekki heits vatns til að hita upp húsnæðið. Á þessum svæðum sem búa við þetta, eins og víða á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og fleiri landsvæðum, ákveðnum svæðum fyrir norðan og á Norðausturlandi og fleiri stöðum, njóta heimamenn, íbúar þessara svæða, ekki þeirra forréttinda sem við höfum hér á höfuðborgarsvæðinu og síðan víða annars staðar á landsbyggðinni þannig að þetta er gríðarlega mikilvægt. Og þó að þetta sé komið fram, þetta sem við erum að tala um hér, er þetta bara lítill hluti af þessum gríðarlega mun sem er á raforkukostnaði hjá fólki og heildarmun á því. Kostnaðurinn af þessum daglegu notum af raforkunni eða orkunni getur verið alveg tvöfaldur eða þrefaldur. Þetta verður eitt af þessum stóru verkefnum sem við þurfum að kljást við áfram. En það er sanngirnismál að á þeim svæðum þar sem orkan er framleidd njóti menn lágs raforkuverðs til atvinnuuppbyggingar og er lykilatriði til að ná því fram þannig að þetta er stærsta málið, held ég, almennt fyrir íslenskt samfélag sem er í þessu máli. Það var rétt að nota þetta tækifæri til að ræða þetta hér vegna þess að það er mjög langt síðan þetta málefni var rætt síðast hér í þingsal, væntanlega verið kannski mest þarna í kringum þetta þegar atvinnuveganefnd var að takast á við þetta mál 2020 og eyddi gríðarlegri vinnu í það, svo mögulega var aðeins átt við málið 2022 en ég hygg að síðustu 2–3 ár hafi lítið verið fengist við þetta mál hér. Við þekkjum núna þetta með grænmetisbændurna, nú eru grænmetisbændur víða að hætta sinni framleiðslu út af háu raforkuverði. Hér er líka stórt efni sem eru þessi 10 MW sem tengjast þessu máli og við getum farið meira í það síðar en það er þrepaskiptingin, hvað eru tilgreindir stórnotendur og síðan minni eigendur (Forseti hringir.) og þar er gríðarlega mikill munur á hvernig menn líta á það mál úr mismunandi áttum.