breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir að eiga orðastað við mig varðandi þessi mikilvægu mál. Ég held að það skipti mjög miklu máli að hv. efnahags- og viðskiptanefnd kalli eftir umsögnum, m.a. frá tollyfirvöldum á Íslandi, til að tryggja það að þau hafi fjármagn og auðvitað ramma til að vinna eftir þannig að breytingin á lögunum nái tilgangi sínum.
Í seinna andsvari langar mig reyndar aðeins að færa mig að flutningsjöfnuninni sem hv. þingmaður ræddi um áðan. Hann nefndi, eins og hér hefur verið nefnt svo sem í umræðunni af öðrum hv. þingmönnum, að það virðist vera þannig að það er kippt í einhverja spotta með einhverju ára millibili og það hlýtur þá að standa upp á stjórnvöld á hverjum tíma að fylgja því eftir hvernig við tryggjum flutningsjöfnun um landið. En veit þingmaðurinn til þess að veitufyrirtækin hafi einfaldlega verið beðin um umsögn um hvernig æskilegt fyrirkomulag væri til þess að við þyrftum ekki að vera að koma að þessu í bandormi aftur og aftur með einhverju ára millibili, sem síðan á sér kannski ekki stað fyrir einhverja tilviljun? Þá verður auðvitað stökkið meira o.s.frv. Sér hv. þingmaður fyrir sér að við getum mögulega leitað í þeirra rann til að leysa málið þannig að við þurfum ekki þessa aðferðafræði?