156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:09]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir með hv. þm. Jóhanni Friðrik Friðrikssyni varðandi þá vinnu sem efnahags- og viðskiptanefnd á eftir að takast á við í sambandi við þetta frumvarp, kalla eftir þessum upplýsingum frá tollyfirvöldum sem snúa t.d. að landamærunum.

Varðandi síðan flutningsjöfnunina þá er þetta búið að vera, eins og hefur komið fram hjá hv. þingmönnum í dag, málefni sem rætt er hér mjög reglulega og verið bútasaumur í gegnum árin en það hefur aldrei fundist almennileg framtíðarlausn þannig að það þurfi ekki að eiga við þetta á tveggja, þriggja ára fresti. Það kemur m.a. fram í þessu nefndaráliti atvinnuveganefndar frá 2020, ef ég man rétt, tillaga um að verðbæta einmitt. En það er bara þannig að ríkið setur almennt ekki inn verðbætur á mál og það eru ákveðnar skýringar náttúrlega fyrir því líka. En þetta var líka stórt og mikið mál þegar við sátum við að móta orkustefnu fyrir Ísland til 2050 fyrir nokkrum árum. Þá voru þessi mál einmitt rædd mikið varðandi dreifikerfið og kostnað vegna dreifikerfisins í dreifbýlinu og hvað væri hægt að gera til að takast á við það. En það var svo sem engin lokaniðurstaða í því.

Varðandi síðan þann þátt að fá dreififyrirtækin til að koma með hugmyndir þá hefur það væntanlega verið víða í umsögnum í gegnum tíðina og líka 2020 hvað þyrfti að gera. Fjármálaráðuneytið kom með fjórar, fimm hugmyndir. Nefndin þá gerði ekki neinar þeirra að eigin tillögu. En það eru gríðarlega skiptar skoðanir um þetta mál og hvernig sé best að takast á við það.