156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:26]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Snorra Mássyni kærlega fyrir hans ræðu. Þau sem kveiktu á útsendingu urðu vitni að því þegar hv. þingmaður sagði sögu af því þegar foreldrar okkar og tengdabörn verða fyrir því áfalli að vita með pósti að við hefðum náð kjöri á þing. Það hlýtur auðvitað að vera sjokk fyrir mörg þeirra. Hann notaði orðalagið „vafasöm tenging“. Ég held það hafi verið ákveðin stílfærsla hjá honum. Ég held að hann hafi ekki verið að gefa til kynna að tenging hv. þingmanns við syni sína sé eitthvað vafasöm. Það er kannski eins beint liggjandi tenging og hugsast getur. Mögulega kann að vera sjokk fyrir þetta fólk að fá tilkynningu um að það sé á einhverjum sérstökum lista í ljósi einhverra laga en það er auðvitað bara eðlilegt. Mér finnst miklu eðlilegra að borgararnir viti að ríkið setji þá á einhvern lista og að mögulega verði af einhverjum ástæðum fylgst aðeins betur með þeim heldur en að láta þá ekki vita en gera það hvort sem er. Mér finnst þetta því ágætismál og engin ástæða til að tortryggja það út af fyrir sig.

Ég velti fyrir mér, af því að hv. þingmaður talar um flutning reiðufjár yfir landamæri o.s.frv.: Er hv. þingmaður sammála því eða ekki að þessar aðgerðir sem snúa að flutningi á reiðufé milli landa séu ákveðin leið til að tryggja að landamæri Íslands séu varin? Mér finnst hv. þingmaður og nokkrir aðrir sá ákveðnum fræjum tortryggni í þeim efnum. Jú, það megi skoða þetta og þetta sé kannski allt í lagi en ef ég les og hlusta á ræður þá þykir mér vera ákveðin tortryggni. Ég myndi halda að þetta væri partur af þeirri viðleitni sem mikið hefur verið kallað eftir, að styrkja betur landamæri Íslands og passa vel upp á þau. Við erum ekkert endilega að leita að fólki sem er að ferja reiðufé milli Breiðholts og Árbæjar en þegar fólk er að fara með reiðufé yfir landamæri þá gegnir öðru um. Er þingmaðurinn sammála mér eða ekki um að þetta sé tilraun til ákveðinnar viðleitni til að styrkja landamæri Íslands?