156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:28]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek kærlega fyrir spurninguna. Hún er góð og lýtur að því hvort maður sé mótfallinn því að tollyfirvöld hafi þessa heimild til að kanna reiðufé í töskum þeirra sem eru að fara úr landi, sem mér skilst að þetta beinist að. Með því að fjalla um þá þætti og efasemdir sem geta vaknað upp er maður alls ekki þar með að segjast vera á móti því. Löggjafinn þarf auðvitað að velta upp ýmsum þáttum sem lúta að þessu en í málinu út af fyrir sig er maður síst mótfallinn því að stigin séu góð skref í átt að því að hafa náið eftirlit með mögulega skipulagðri glæpastarfsemi. Sömuleiðis ef maður horfir á málið þá held ég að það sé ekki algengt að fólk sé við eðlilegar kringumstæður að fara með meiri háttar upphæðir í reiðufé úr landi. Hins vegar getur það alveg gerst og það er spurning hvernig tollyfirvöld bregðast við ef það kemur upp úr dúrnum að svona mikið reiðufé sé í töskum einhvers. Auðvitað má hver sem er taka þá sjálfstæðu ákvörðun að gera það rétt eins og maður fer á milli landa með sínar upphæðir á bankareikningnum og æðimisjafnt hvort þær upphæðir megi telja í milljörðum, hundruðum þúsunda eða þúsundum. Í meginatriðum er maður ekkert sérstaklega á móti þessu en hins vegar held ég að í svona umræðu þá þurfum við auðvitað að ræða þetta út frá okkar grunnprinsippum í málinu.

Hvað snertir landamærin og vernd á landamærum þá er ég hjartanlega sammála því göfuga markmiði að við verðum að gera gangskör að því að tryggja landamærin á ýmsum sviðum með margvíslegum betri hætti en nú er gert. Þar hefur ekki verið unnið nógu skipulagt starf og heyrir maður úr mörgum áttum að víða sé pottur brotinn. (Forseti hringir.) Ef þetta mál er eitt skref til að hafa augun á þeim bolta, sem er kannski ekkert galið að fullyrða, (Forseti hringir.) þá er maður ekki á móti því ef það er niðurstaðan.

(Forseti (EÁs): Ég bið ræðumenn að virða tímamörk.)