156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:32]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Pawel Bartoszek aftur fyrir andsvarið og góðar hugmyndir. Við í Miðflokknum erum sannarlega fylgjandi tollvernd á ákveðnum sviðum en þó ekki svo hrifin af tollvernd að við viljum ganga í sérstakt tollabandalag eins og hv. þm. Pawel Bartoszek. Þar að auki varast ég ævinlega alla viðleitni sem snýr að því að bjóða inngöngu í það tollabandalag sem þar um ræðir sem lausn við öllum mögulegum vandamálum sem á okkur dynja. Ég held að ég myndi heldur kjósa að umbera eilíflega svipugöngin í Leifsstöð frekar en að ganga í Evrópusambandið.

(Forseti (EÁs): Ég vil minna hv. þingmann á að það ber að ávarpa forseta í upphafi máls.)