156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:33]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir hans framsögu. Margt sem kom þarna fram sem fær mann aðeins til að hugsa, vissulega, en það sem slær mig við lestur þessa máls og ég mun eflaust koma inn á í minni ræðu hér á eftir eru í rauninni þessir einstaklingar sem eru í viðkvæmri stöðu. Við erum að tala um eldri borgara, öryrkja og innflytjendur sem skilja ekki alveg tungumálið, og hvort í rauninni, hvað varðar flutning reiðufjár, þeir muni átta sig á þessari tilkynningarskyldu varðandi þennan flutning. Telur hv. þingmaður að tekið sé nægilega vel utan um það hvernig það verði tryggt að þessar upplýsingar muni berast?