breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Ég ætla að hefja mál mitt á að biðjast forláts á að hafa ekki ávarpað forseta sem skyldi í fyrri ræðu en þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ágæta fyrirspurn. Ég held að það sé meðal umhugsunarefna í þessum breytingum að gæta þess að menn falli ekki af ýmsum ástæðum milli skips og bryggju í því að vita ekki af einhverjum nýjum reglum, flóknum reglum, þegar þeir eru kannski að gera eitthvað sem þeim hefur alla tíð þótt afskaplega eðlilegt; að flytja reiðufé með sér. Það er enn þá fólk sem gerir það af margvíslegum ástæðum, hvort sem það er vegna menningarmunar eða kynslóðabils, fólk frá útlöndum eða annað eins, og er það sannarlega eitthvað sem við þurfum að hafa í huga og mætti skoðast betur við vinnslu frumvarpsins hvort menn séu að horfa til þessara þátta, hvort einhver geti verið þarna hálfpartinn eins og illa gerður hlutur og verið hálfpartinn sakbentur fyrir eitthvað sem honum þykir fullkomlega eðlilegt á grundvelli þessara nýju reglna. Hitt er svo annað sem manni verður hugsað til í samhengi við umræðuna um t.d. eldri borgara og þær væntingar sem við getum gert til þeirra í sambandi við svona mál, vegna þess að fólk lifir bara sínu lífi og er ekkert endilega að fylgjast með daginn inn og út þeim breytingum sem við erum að gera á lögum og annað eins eða þeim breytingum sem eru að verða í samfélaginu og margt slíkt. Mér finnst að það vanti stundum í umræðuna ákveðna virðingu fyrir því að eldri borgarar eru auðvitað þeir sem byggðu landið. Ég verð var við þessa umræðu t.d. í sambandi við umræðu um að geta ekki talað íslensku úti í búð, enska er orðin allsráðandi í afgreiðslu víða. Þá er sagt: Hvað, er einhver of góður til að tala ensku? Ja, það eru t.d. margir sem tala ekki ensku á Íslandi og það er auðvitað vert að bera virðingu fyrir fólki sama úr hvaða aðstæðum það kemur. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina.