breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu enn á ný fyrir ágætar vangaveltur um þessi mál. Ég held að það sé mikilvægt að við höfum það mjög hugfast í svona vinnu hver endanleg niðurstaða verður fyrir byggð um allt land, að í kerfi þar sem við erum að nýta orku sem verður til úti á landsbyggðinni verði niðurstaðan ekki eftir dúk og disk sú að höfuðborgarbúar eða fólk í þéttbýli njóti mun betri kjara en t.d. íbúar á þeim svæðum þar sem orkan verður til og þar sem fólk vinnur í þessari starfsemi. Það er auðvitað augljóst sanngirnismál að mínu mati. Útfærsla á því að jafna þennan leik er atriði sem við erum tilbúin til að skoða betur í framhaldinu en ég held að meginlínan í þessu sé að við á Alþingi Íslendinga, sem erum auðvitað mörg mjög tengd höfuðborginni og störfum í höfuðborginni öllu jöfnu, höfum mjög hugfast hversu áríðandi mál það er fyrir okkur að halda því þannig að aðgerðir okkar komi ekki niður á landsbyggðinni. Þetta má nefna í mörgum öðrum málum sem nú eru uppi og við höfum talað um þetta í sambandi við sjávarútveginn og annað. Það verður bara að hafa þetta hugfast sem mjög lögmætt, mikilvægt og áríðandi sjónarmið vegna þess að án landsbyggðarinnar er eiginlega ekkert land. Þetta er menningarheild landsins sem þarna er undir. Við þurfum að horfast í augu við þá hugmyndafræðilegu staðreynd og láta svo aðgerðir okkar renna stoðum undir það göfuga markmið sem við höfum.
(Forseti (EÁs): Ég minni hv. þingmann aftur á að það ber að ávarpa forseta þegar tekið er til máls.)