156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:49]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir ræðuna. Þegar ég kom inn í salinn áðan þá heyrði ég að hv. þm. Pawel Bartoszek og hv. þm. Snorri Másson voru að ræða þann hluta þessa frumvarps sem snýr að peningaþvætti. Þeir fóru að tala um þetta svokallaða PEP, sem við þingmenn föllum undir. Það var verið að tala um fjölskyldur okkar og að okkur munaði ekkert um að tikka í einhver box. Málið er það, eins og þetta horfir við mér, að það er bara eitthvert brotabrot af þessari peningaþvættislöggjöf. Þetta snýr að því að við erum búin að flækja líf allra bara alveg endalaust mikið. Mig langar að spyrja hv. þingmann sem hefur verið hér lengur en ég: Áttar hann sig á því af hverju svona ofboðslega ólíkum málum er flækt saman í eitt í þessu frumvarpi? Er það bara til þess að þetta komist að í þinginu eða er einhver ástæða fyrir þessu sem ég, sem er ný, botna bara ekki í en hv. þingmaður skilur?