156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:52]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir svarið. Mér fannst mjög áhugavert það sem hún sagði um að nýta ferðina. Þetta er nefnilega nákvæmlega það sem ég held að málið snúist um, hér er verið að nýta ferðina. Það segir okkur bara að við þurfum að passa okkur betur. Það er verið að rugla öllu saman og við þurfum að lesa fyrri lög og núgildandi lög til að ná utan um þetta. En gott og vel, þetta er svona. Ég persónulega er hlynnt tilgangi peningaþvættislaganna. Ég er eiginlega heilt yfir rosalega andvíg þessum lögum að öðru leyti en tilgangi þeirra því að þau eru orðin algjört skrímsli og þá eru þau búin að missa tilgang sinn. Það eru alls konar fyrirtæki sem þurfa að vera í lögguleik og fleira. Ég mun fara yfir það í minni ræðu hér á eftir. Við sjáum t.d. að regluverkslöndin í kringum okkur, Evrópusambandslöndin, eru sum auðvitað að standa sig ágætlega, ekki öll, þegar kemur að þessari löggjöf. En það eru líka fleiri lönd, ég get nefnt t.d. Kólumbíu, sem standa sig frábærlega. Maður hefði nú haldið að þeir ættu kannski í vandræðum með peningaþvætti. En ég hitti einmitt einn góðan mann sem benti mér á það að þegar þú ert kominn með svona íþyngjandi regluverk og kominn með svona löggjöf sem er orðin svona meingölluð, þá bara finnur vatnið sinn farveg og þú lærir á glufurnar. Þetta er bara orðið of flókið. En ég fer betur yfir það í ræðu minni.

Þá er komið að seinni spurningu minni, ég ætla að spyrja hv. þingmann um tollhlutann í þessu frumvarpi. Það er bara mjög gott að tollurinn fái víðtækari heimildir en á sama tíma er búið að vera t.d. mjög mikið vesen fyrir tollverði að fá aðgang að bíl til að renna hérna gámum í gegn. Það er miklu auðveldara fyrir fíkniefni að streyma hérna í gegn af því að við höfum ekki bíl, það er ekki settur peningur í það, en við getum alveg flækt regluverkið. Hvað segir hv. þingmaður um það? Erum við stundum aðeins að henda krónunni fyrir aurana?