156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[15:54]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur kærlega fyrir andsvarið. Varðandi tollalöggjöfina og fjármuni og hvort við séum stundum að flækja hlutina eða ekki að fjármagna rétta hluti þá situr hérna inni maður sem þekkir vafalaust mun betur til þessara mála heldur en við hin. En ég held að það sé rosalega mikilvægt þegar um er að ræða skattfé borgaranna að við séum alltaf reiðubúin til að velta við öllum steinum til þess að skoða hvernig við getum nýtt fjármuni okkar með sem bestum hætti. Ég ætla ekki að fullyrða það en ég held að það sé afar líklegt að á mörgum sviðum, þó nokkrum sviðum, getum við eflaust gert betur og þar séum við eflaust að kasta krónunni til þess að spara aurinn. Nú erum við að fara að ræða í næstu viku fjármálaáætlun sem átti að vera hér á dagskrá í dag og í gær en það færðist yfir í næstu viku því að það var einmitt skortur á upplýsingum, skortur á upplýsingagjöf og mælikvörðum og öðru þannig að við gætum áttað okkur á því hvar væri verið að hagræða og í hvaða málaflokkum. Hvað er verið að leggja til? Í hvað fer skattfé borgaranna raunverulega? Þessir mælikvarðar og það hvernig við ætlum að mæla árangurinn þarf allt að liggja fyrir til þess að við getum áttað okkur á heildarmyndinni og getum rýnt í það hvort einhvers staðar sé verið að kasta krónunni fyrir aurinn. Það þarf svolítið að tengja saman fjármálaáætlun við fjárlög og við áætlanir ríkisstjórnarinnar og skoða hvort það sé samræmi þarna á milli. Ég held að það sé afar mikilvægt og við eigum öll að hjálpast að við það að finna leiðir, ef við sjáum einhvers staðar glufur, og benda á hvar er hægt að gera betur. Ég held að það sé mjög mikilvægt.