breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Ég ætlaði aðeins að koma inn á þetta mál á nokkrum stöðum. Í fyrsta lagi er þetta frumvarp til að færa til betri vegar ýmsa þætti í nokkrum lagabálkum, aðallega vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fleiru. Það leiðir hugann aðeins, frú forseti, að raunverulegum peningum, reiðufé. Mig langar aðeins að taka það hér upp augnablik. Þegar ég var að læra lögfræði voru peningar þess eðlis að ef þú hafðir pening í vasanum þá þurftirðu raunverulega ekki að sanna eignarhald þitt á honum, þ.e. ef þú hafðir fjármagn undir höndum í formi peninga þá þurftirðu ekki að sanna eignarhald þitt á þeim. Þeir eru ekki merktir, þeir eru til handhafa í raun og veru og það er nægjanlegt að hafa þá í sinni vörslu og þá eru fyrstu viðbrögð að viðkomandi sem hefur þá undir höndum, hann á þessa fjármuni. Þetta er svona meginregla. Auðvitað gildir annað um bifreiðar og fleira vegna þess að þær eru skráðar og merktar og sérgreindar og þær er hægt að þekkja frá öðrum sams konar. Peningar hafa þennan eiginleika að fólk getur treyst því yfirleitt í nútímasamfélögum að þeir feli í sér einhvers konar verðmæti sem fólk getur treyst á að geta notað í viðskiptum. Þess vegna er mjög mikilvægt, frú forseti, að við stöndum vörð um notkun á reiðufé, peningum, í landinu.
Það minnir mig líka á að það var nú auglýsing, hvort það var í sjónvarpinu heima eða einhvers staðar erlendis, um viðbrögð við vá. Ef kæmi hér einhvers konar vá þá þyrfti fólk að hafa útvarpstæki og rafhlöður í þau og vatnsflösku, vasaljós og ýmislegt annað og einhvern niðursuðumat og fleira til að geta þreyjað í einhverja daga. En ég tók eftir því að það var líka umslag með reiðufé, með peningum. Þess vegna er mjög mikilvægt, frú forseti, að við förum ekki alla þá leið sem önnur Norðurlönd hafa gert, og er mjög áberandi og ég hef sjálfur persónulega lent í því á öðrum Norðurlöndum, að peningar eru hreinlega illa séðir. Það er ekki tekið við þeim á veitingastöðum eða í verslunum mörgum hverjum og ég held að ég gæti farið rétt með það að ríkisstjórnir þessara landa eru raunverulega að taka þá bara alfarið úr gildi. Við erum ekki komin svo langt sem betur fer, frú forseti, vegna þess að við þurfum það. Við þurfum einhvern gjaldmiðil til að geta notað ef allt fer í skrúfuna, eins og sagt er. Í þessu sambandi er mjög einfalt að líta til þess að við erum tengd umheiminum og tengd hvert öðru í gegnum tölvur og síma, að miklu leyti í gegnum nokkra strengi sem liggja hér í hafinu í kringum landið. Með vísan til frétta á síðustu misserum, að strengir í Evrópu víða hafi annaðhvort af ásetningi eða gáleysi verið klipptir í sundur, oftar en einu sinni og oftar en það, þá er mjög auðvelt að setja okkur á þann stað að við getum ekki nýtt okkur þann greiðslumáta sem við langflest notum í dag, þ.e. að greiða bara með korti eða síma eða millifæra eða eitthvað slíkt. Ég vil bara árétta þessa skoðun mína að við verðum að halda í reiðufé, við verðum að nota það meira en við gerum.
Af hverju er ég að nefna þetta í tengslum við þetta mál? Vegna þess að í þessu máli er auðvitað að finna ákvæði um breytingar á tollalögum sem gefur tollgæslunni auknar heimildir. Ég er helsti talsmaður þess hér á þingi, og hef verið það í mínu fyrra lífi sem þingmaður, að stemma stigu við ólögmætri brotastarfsemi og efndi oft til umræðna um það mál hér í þessum sal, fyrir fimm, sex, sjö árum, reyndar við furðulitlar undirtektir, svo litlar að menn eru bara að vakna þessi misserin. Síðasta kannski eitt ár hafa menn vaknað til lífsins um að þetta væri ógn sem við þyrftum að taka á. Eru einhverjar aðgerðir sjáanlegar? Jú, að fjölga lögreglumönnum. Eitt og annað jú, vissulega, ég ætla ekki að þykjast ekki hafa tekið eftir því að það er eitthvað búið að gerast, en ég held að það þurfi að ganga miklu lengra. Við þurfum að taka fast á þessu áður en þetta grefur sig svo vel hér í samfélaginu að við ráðum ekki við það. Við verðum að taka á því strax. Þess vegna fagna ég auðvitað mörgum ákvæðum í þessu frumvarpi, að sjálfsögðu, eins og þessu með fjármagnsflutningana. Það hefur færst í vöxt að íslenska lögreglan og tollgæslan, bæði eða í sitthvoru lagi, hafa verið að haldleggja fjármuni, peninga á landamærunum, miklu meira heldur en fyrir nokkrum árum síðan, held ég að ég geti fullyrt, þótt ég hafi nú kannski ekki tölurnar á hreinu, í tengslum við einmitt skipulagða brotastarfsemi, aðallega þó kannski fíkniefnaviðskipti, þannig að það er vel og við þurfum auðvitað að standa á bak við lögregluna og tollgæsluna í þessum efnum og ég styð það fullkomlega.
Frú forseti. Hér er verið að laga tollalögin. Fyrir 17 árum síðan var tollgæslan klofin frá lögreglustjórninni víðast um landið, þó ekki hér á höfuðborgarsvæðinu, það var búið að gera það áður, en um allt land var hún aðskilin frá lögreglustjórninni og sýslumannshlutverkinu sem þá var, árið 2007 held ég að það hafi verið, og ég hef ekkert fyrir mér raunverulega í því en ég velti fyrir mér þessari samvinnu á milli löggæslu og tollgæslu, hvort samstarfið sem á sér stað, sérstaklega á landamærum, þetta samstarf þeirra á milli hafi skánað nú eða hafi orðið einhvers konar afturför í samvinnu þessara aðila þar sem þeir eru ekki undir sömu stjórn lengur og tollurinn er náttúrlega kominn undir Skattinn og bara eitt embætti á höfuðborgarsvæðinu og öllu landinu sem sér um þessa hlið málanna. Ég velti þessu fyrir mér og það væri nú gaman að setja saman einhvers konar fyrirspurn um þetta efni hér á þingi til að komast að því hvort menn telji að þetta hafi verið til góðs eða ekki. Ég hef nú alltaf þá skoðun, og er nú svo þröngsýnn og gamaldags að þessu leyti, að ég tel að svona hlutir eigi að vera á einni hendi á hverjum stað. Ég tel t.d. að á flugvellinum, sem er helsta leiðin inn og út úr landinu, eigi stjórn löggæslumála og tollgæslumála og öryggisgæslu og allra handa stjórnun á flugvellinum að vera sem allra mest á einni hendi á staðnum þannig að menn hafi auga með öllu, allri starfseminni, allri gæslunni í raun og veru á þeim stað. Þetta er gífurlega stór flugvöllur og hefur farið stækkandi og þarna fara milljónir farþega um á ári. Þetta er komið í flokk þeirra flugvalla sem eru einna fjölfarnastir í Evrópu. Þetta var bara pínulítill flugvöllur fyrir 30 árum síðan og við vorum bara hverjum manni fegnust sem lagði leið sína hingað. Það voru nú aðallega einmana Þjóðverjar sem löbbuðu með bakpokann sinn hér út í víðáttu landsins. Ég velti þessu fyrir mér: Var þetta skref til góðs eða ekki? Sérstaklega á svona stað eins og Keflavíkurflugvelli þar sem starfsemin er umfangsmikil og mikið um að vera og þetta er — ég veit ekki hvort 90 eða 95% af öllum ferðamönnum fari í gegnum Keflavíkurflugvöll af þeim sem koma til landsins. Ég tel nú kannski ekki með skemmtiferðaskipin sem koma og menn fara bara einn rúturúnt. Þetta er svo gífurlegur stór hluti af ferðamennskunni hér á Íslandi.
Ég ætla að minnast á kannski tvo, þrjá hluti í viðbót. Það er varðandi breytingu á tekjuskattslögum. Ég tel alveg augljóst að auðvitað eigi ríkisskattstjóri að hafa heimild til þess að breyta fyrri ákvörðunum eins og gert er ráð fyrir í 19. gr. frumvarpsins sem á að breyta 101. gr. tekjuskattslaga, að ríkisskattstjóri, sem heitir reyndar Skatturinn í dag — ég veit ekki alveg hvort hann sé með mörg nöfn en þarna er hann nefndur ríkisskattstjóri — hafi heimild til að breyta fyrri ákvörðunum ef dómstólar eða yfirskattanefnd — sem er raunverulega seinasta áfrýjunarstigið í skattinum ef það er búið að fella úrskurð sem gengur á þann veg að fyrri ákvarðanir ríkisskattstjóra, sem er þá lægra sett stjórnvald, eru orðnar rangar — eru búin að dæmi eitthvað ákveðið efni. Auðvitað á hann að hafa heimild til að breyta þessum ákvörðunum. Ég er reyndar mjög hissa ef það hefur ekki nú þegar verið í lögum. En hér stendur nú reyndar „að eigin frumkvæði“ og auðvitað á það að vera að eigin frumkvæði. Skattþegninn úti í bæ á ekki að þurfa að banka í hann og segja: Heyrðu, nú er allt breytt, þú verður að lækka álagninguna mína. Og hvað með þá alla hina sem ekki vakna upp við vondan draum? Auðvitað á þetta að vera, þannig að ég fagna þessu ef breytingin gengur út á það að honum sé heimilt núna, en hafi ekki verið áður, að eigin frumkvæði að taka þetta upp hjá sér. Ég styð þetta heils hugar.
Ég styð það auðvitað líka að jöfnunargjald til að jafna kostnað af dreifikostnaði raforku — ég kem nú frá Vestmannaeyjum þar sem bærinn er allur raunverulega hitaður upp með raforku, annaðhvort á beinan eða óbeinan hátt gegnum fjarveitu, þannig að ég styð auðvitað að það sé komið til móts við þessi svæði sem ekki njóta þeirra forréttinda að hafa heitt vatn í nágrenni við sig, sem eru ekki nema kannski innan við 10% af heimilum landsmanna, ég held að það séu 5% eða 10%, einhvers staðar þar á milli. Auðvitað eigum við að gera fólki kleift að búa á þessum stöðum og vera ekki að sligast af hitunarkostnaði þegar aðrir landsmenn búa við þau forréttindi að hafa þessa auðlind í bakgarðinum hjá sér eins og við hér á höfuðborgarsvæðinu. Þegar þessi jöfnun tekur gildi þá hefur það samt viljað brenna við að gjaldskráin hækkar bara viku seinna, þetta sé einhvers konar eltingarleikur, um leið og niðurgreiðslan hækkar þá hækkar bara gjaldið þannig að þetta kemur á sama stað niður. Það er auðvitað ekki gott og ég bendi á það að hin nýja hæstv. ríkisstjórn taki þetta kannski til skoðunar, að þetta valdi því ekki bara í þessari nýtilkomnu skemmtilegu samkeppni sem við búum við í raforkumálum að þeir aðilar sem eru að selja raforkuna gangi á lagið og hækki þá verði bara jafnharðan.
Ég ætla einnig aðeins að minnast á hagnað lögaðila þegar vara er ranglega skráð fyrir tolli. Hingað til hefur þurft að sekta einstaklingana, jafnvel starfsmanninn. Ég er auðvitað fylgjandi því að í þeim tilvikum verði heimilað að gera lögaðilanum sekt, (Forseti hringir.) sem nýtur auðvitað mikils hagnaðar af brotinu ef það tekst eða kemst ekki upp.