breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Frú forseti. Hér er verið að fjalla um svo mjög svo óskyld mál í sama frumvarpi, sem er út af fyrir sig undarlegt, og flækjustigið er mikið. Flækjustig er það sem mig langar að ræða hér í dag. Það er alveg óþolandi þegar yfirvöld flækja líf okkar og oft finnst manni það vera eiginlega algerlega að óþörfu. Hér kom fram hjá hv. þm. Pawel Bartoszek, eins og ég ræddi áðan, í umræðum um peningaþvættishluta þessa frumvarps, að okkur þingmönnum og nánum aðstandendum væri ekki vorkunn þótt við þyrftum að haka í einhver box hjá bankanum við og við, af því að þetta gerist svo sjaldan að þetta sé ekkert mál. En þessi löggjöf sem hér um ræðir er svo miklu stærri en að það sé aðalvandamálið og hefur áhrif á miklu fleiri heldur en okkur sem hér erum inni. Ég vil því taka það fram, eins og ég gerði áðan, að ég er hlynnt tilgangi peningaþvættislaganna þó að ég sé orðin verulega skeptísk á peningaþvættislöggjöfina eins og hún er orðin í dag, algert skrímsli. Sá hluti sem við ræðum um hér í dag er ekki svo slæmur en þegar þú bætir og bætir og bætir við án þess að skoða löggjöfina og hvort hún sé að ná tilgangi sínum þá er orðið eitthvað mikið að.
Málið er það að lögin um peningaþvætti bera allt of mikil merki þess að vera lög til að tikka í box, efla eftirlitsiðnaðinn og flækja líf okkar allra, sérstaklega þeirra sem eiga alls kyns viðskipti. Það er náttúrlega búið að stimpla alla sem eiga viðskipti yfir lönd og landamæri sem glæpamenn með þessari peningaþvættislöggjöf og ég er sannfærð um að ef okkur væri alvara, og þeim löndum sem segjast ætla að minnka flækjustig og minnka regluverk, væri auðveldlega hægt að einfalda peningaþvættislöggjöfina verulega mikið. Þessi löggjöf á heimsvísu er komin út fyrir allan þjófabálk. Hún er komin langt út fyrir tilganginn.
Þess má geta að það hefur verið mikil umræða í Bretlandi meðal til að mynda lögmannastéttarinnar þar, þeir telja að löggjöfin sé að búa til einhvers konar löggur á meðal lögmanna og stóraukinn iðnað og kostnað fyrir fólk sem þarf að sanna að það sé ekki að þvætta peninga, og þetta fólk sem er að kanna þetta er ekki í neinni aðstöðu til að kanna það.
En hv. þingmenn átta sig kannski ekki á því að einföld viðskipti geta orðið stórkostlega flókin og kostnaðarsöm. Þú þarft að sanna hvaðan peningar koma og til að mynda til að einhver lögfræðistofa megi taka á móti peningum þurfa lögfræðingarnir að fara í þennan svokallaða lögguleik sem ég minntist á og fá ekki svör við spurningum sínum til að tikka í boxin en sá sem er að reyna að eiga viðskipti eyðir ómældum tíma í að útvega gögn, fá þýðingu frá t.d. löggiltum þýðanda, borga fyrir það, stimplað frá sýslumanni, gögn frá sínum banka o.s.frv. Hvað haldið þið að þetta kosti í tíma og peningum? Það geta verið stórkostlegar upphæðir, alls kyns aðilar þurfa að gerast þessar löggur sem hafa enga burði til þess. Og hvað gerist þá? Jú, það kemur alls kyns eftirlitsiðnaður. Eitt dæmi er að nú geta margar lögfræðistofur ekki bara sent þér tölvupóst með bankaupplýsingum ef þú þarft að leggja inn á lögfræðistofuna, þau senda þér hlekk þar sem þú þarft að setja inn lykilorð til að fá bankaupplýsingarnar en lykilorðið færðu bara þegar þú ert kominn í gegnum peningaþvættislögguleikinn, þ.e. ef þú kemst einhvern tímann í gegnum hann, því sérstaklega minni fyrirtæki eiga oft mjög erfitt með að eiga viðskipti yfir lönd, þetta er orðið svo mikið, flækjustigið. Og hverjum er þetta rugl að þjóna? Ekki fólkinu sem er að eiga viðskiptin. Þótt við séum að stoppa viðskipti þess þá eru aðrir að þvætta peninga sem kunna á kerfið. Ókei, þá myndu sumir segja: Gerum þetta kerfi enn þá flóknara. Ég held að það sé ekki lausnin hérna.
Vandamálið er að kerfið er orðið svo flókið að þeir sem eru hérna, eða eins og Evrópusambandslöndin öll í því að flækja allt og gera allt flóknara, tikka og tikka í boxin og þeir sem eru farnir að kunna á kerfið þvætta peningana fram hjá. Og á hverjum bitnar þetta, eins og ég sagði? Jú, okkur sem erum bara að reyna að eiga einföld viðskipti milli landa, þannig að ég held að við þurfum að endurskoða þessa löggjöf til að hún nái tilgangi sínum. Við ættum að einfalda málið. Fyrst og fremst eru það bankar sem ættu að vita uppruna peninganna því þeir eru í bestu aðstæðum til að vita hvaðan peningar koma. Þegar peningar koma beint frá bönkum á það að vera nóg fyrir aðra aðila sem eru í dag skuldbundnir til að fara í lögguleikinn án þess að vera í raun í neinni aðstöðu til að afla réttra upplýsinga því á endanum eru það bankarnir sem útvega þessum sömu aðilum upplýsingarnar.
Svo er líka áhugavert hvaða lönd eru að standa sig vel. Það eru lönd, eins og ég nefndi áðan, sem eru mikil regluverkslönd, ekki öll þeirra þó. Þrátt fyrir allt regluverkið geta þau ekki staðið sig vel sjálf af því að þetta er orðið svo flókið. Sviss er reyndar fremst á meðal þjóða, en þeir eru nú ekki í Evrópusambandinu. En það er eins gott að það sé góð reglugerð þar. En það eru líka lönd sem eru að standa sig mjög vel sem okkur myndi kannski ekki detta í hug að væru framarlega þegar kemur að peningaþvættislöggjöf, samanber Kólumbíu, Botsvana, Máritíus og fleiri. Þau standa sig með afburðum vel. Er ekki eitthvað skakkt? Heyrið þið það ekki bara að það þarf að skoða eitthvað? En eins og margir vita hefur t.d. Kólumbía verið þekkt fyrir margt en eitt af því er að eiga í verulegum vandræðum þegar kemur að fíkniefnum og verulegum vandræðum þegar kemur að þvætti peninga en þau eru að standa sig mjög vel í peningaþvættiskerfinu. Við skulum vona að það sé bara gott en mig grunar að það sé af því að kerfið er meingallað, því þegar kerfin verða of flókin, eins og ég sagði, þá missa þau tilgang sinn og mikið væri gott ef við myndum einfalda þessa löggjöf. Ég held að Ísland ætti að sýna fordæmi og draga úr þessum reglum eins mikið og okkur er mögulegt og einbeita okkur að því að ná fram tilgangi laganna sem er að koma í veg fyrir peningaþvætti.
Ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra í bili en ég ætla bara að draga þetta svolítið saman. Þetta er veruleg byrði á fyrirtæki. Þetta er verulega aukinn stjórnsýslukostnaður. Þetta hefur veruleg áhrif á friðhelgi einkalífsins. Þetta getur valdið einstaklingum og litlum fyrirtækjum, og auðvitað stórum, miklum erfiðleikum, oft koma falskar jákvæðar niðurstöður. Allt þetta væri mögulega réttlætanlegt ef tilganginum væri náð en ég er sannfærð um að svo er ekki.