156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[16:20]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir hennar innlegg. Það var upplýsandi og gott. Hv. þingmaður var að ræða um peningaþvættislögin. Ég hef fundið fyrir þessum lögum sjálfur á mínu skinni og mitt fólk í kringum mig; að fara inn í tölvuna og tikka í einhver box sem endar einhvern veginn með því að maður hættir að fylgjast með hvað maður er að gera og vill bara fá staðfest að maður sé kominn inn í kerfið. Alltaf þegar þannig kerfi er í gangi þá hringja einhverjar viðvörunarbjöllur hjá manni. Mig langar að spyrja hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur sem var með framsögu áðan: Við erum með fólk sem er að reyna að stunda viðskipti — á hverjum bitnar þetta helst? Ég er að hugsa um fólk sem er jafnvel að stíga sín fyrstu skref í viðskiptum, hefur ekki of mikið fjármagn á milli handanna og getur ekki leitað sér sérfræðiþjónustu með þessi lög. Getur verið að þetta sé aðgangshindrun fyrir fólk sem er kannski með góða viðskiptahugmynd og þarf að flytja fé á milli landa? Getur verið að þessar flækjur og þessi lög hindri það fólk sem síst skyldi? Mér þætti gaman að fá álit hv. þingmanns á þessu.