breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir mjög góðar spurningar. Hann náði eiginlega að kjarna þetta á ákveðinn hátt mjög vel. Það er nefnilega málið: Maður hættir að fylgjast með. Maður stimplar bara, tikk, tikk, tikk, og vonast til að komast áfram á næsta skref. Jú, þá ættu viðvörunarbjöllur að hringja. Þær virðast ekki gera það. Ég einhvern veginn óttast að þrátt fyrir loforð flestra landa um að reyna að draga úr regluverkinu — þeir fóru nú ekki að gera það fyrr en þeir voru, eins og Evrópusambandið, farnir að dragast verulega aftur úr öðrum heimsálfum. Við skulum vona að það sé að vakna og breyti þessu en það eru engin merki þess enn þá þannig að við þurfum einhvern veginn að vinna með þetta.
Hverjum bitnar þetta verst á? spurði hv. þingmaður. Hann tók nokkur dæmi og ég get tekið undir þau öll. Auðvitað bitnar þetta illa á ungu fólki sem er kannski að fara í nám og þarf að borga fyrir skólagjöld. Skólinn þarf kannski að fara í lögguleik eða fá lögfræðistofu í milligöngu af því að skólinn má ekki taka á móti peningunum. Þetta er orðið algjört skrímsli, þessi lög. Svo bitnar þetta mjög illa á nýsköpunarfyrirtækjum, litlum fyrirtækjum. Þau geta ekki, eins og hv. þingmaður sagði, ráðið sér endalausa þjónustu til að standa í þessu. Þetta dregur úr nýsköpun af því að þetta er of mikið. Þetta er komið á þann stað að þetta er of mikið, fólk hættir jafnvel við.
Svo bitnar þetta líka illa á eldra fólki sem vill kannski bara fara og kaupa sér íbúð fyrir ævisparnaðinn, t.d. á Bretlandi eða Spáni. Gangi því vel að komast í gegnum þetta. Það er ekki nóg að segjast hafa unnið alla sína ævi, nei, nei, maður þarf að fá allt þýtt og stimplað og það er eitthvað sem margir eru ekki tilbúnir í og sumir hræðast það. Þeir þurfa kannski ekki að hræðast það en þetta er ofboðslega mikið flækjustig. (Forseti hringir.)
Að lokum, um hvort þetta hindri þá sem síst skyldi, þá er svarið einfaldlega: Já, þetta getur hindrað þá sem síst skyldi.