breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir gott svar við andsvari mínu. Ég get tekið undir í raun allt það sem hv. þingmaður segir. Það er sérstakt þegar reglurnar eru einhvern veginn farnar að stjórna okkur og við erum í þágu reglnanna en þær ekki í okkar þágu. Ég held að þetta geti bitnað á fólki sem er mögulega með einhverja hugmynd. Það þarf áræði til að leggja fé í fyrirtæki og þegar fyrstu hindranirnar eru þess eðlis að þú skilur þær ekki þá er ekkert ólíklegt að það dragi úr þér kjark. Það getur valdið því að verðmætasköpun minnki einfaldlega í samfélaginu þegar við erum öll með einhvern smásand í tannhjólunum. Það er óþægilegt.
Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hún virðist vera nokkuð djúp í þessu máli, er þetta með peningaþvættiskerfið. Verið er að mæla hvernig það gengur hingað og þangað og svo koma upp ríki sem mann hefði ekki grunað að stæðu sig vel, ríki sem eru kannski með stórt svart hagkerfi, mikið af reiðufé í umferð, sem mælast mörg hver mjög hátt á þessum peningaþvættismælikvarða. Þá velti ég fyrir mér hvort kerfið í raun sé bara eitt stórt falskt öryggi. Ég spyr þá hv. þingmann um það og hvort við séum þá með aðgangshindrun þannig að stór fyrirtæki geta keypt sér þjónustuna — hvort hún sé sammála því, sem kom kannski fram hjá henni áðan, að þetta sé ákveðinn dragbítur á minni fyrirtækjum sem hafa minni pening (Forseti hringir.) til að kaupa sér þjónustu. Þá er spurningin (Forseti hringir.) hvort þetta sé falskt öryggi.