breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir afbragðsgóða spurningu. Já, þetta er falskt öryggi og það er stóra vandamálið. Ég er svo ánægð að hafa náð utan um þetta. Þetta er nákvæmlega kjarninn og þess vegna eru lögin gölluð og tilganginum ekki náð. Það sem hv. þingmaður kom líka inn á var hvort þetta gæti dregið úr verðmætasköpun. Klárlega, þetta getur dregið svo mikið úr verðmætasköpun, sennilega það mikið að við vitum ekki — segjum ef Kerecis hefði t.d. stoppað einhvers staðar. Sem betur fer gerðu þeir það ekki. Við vitum ekki hversu mikið þetta getur dregið úr eða hverjum þetta lendir á en þetta getur klárlega dregið úr verðmætasköpun. Þetta getur líka orðið til þess að eggjunum verði ekki dreift nógu víða. Við erum kannski með fyrirtæki sem myndu vilja vera í alþjóðlegum viðskiptum en það er bara orðið of flókið.
Svo er það þetta: Stærri fyrirtæki geta og minni ekki. Verður meiri samþjöppun? Hætt er við því. Bankarnir ættu að vera miklu stærri leikendur á þessu sviði. Þeir þurfa ekki að gera meira eða skoða meira, þeim á að vera treyst, eins og þetta var. Við fórum of langt. Bankarnir eru þeir sem geta skoðað einstaklinga og fyrirtæki. Þeir sjá hvaðan peningarnir koma. Þeir geta látið gervigreindina í dag t.d. pikka út alls konar skrýtnar færslur. En nei, við erum búin að láta alls konar fyrirtæki vera í lögguleik núna, búin að skylda alls konar fyrirtæki sem geta ekki staðist þennan lögguleik sem þau eru í. Þetta er staðan og þetta er orðið mikið falskt öryggi. Eins og hv. þingmaður sagði þá standa Kólumbía, Máritíus og fleiri lönd sig frábærlega þegar kemur að peningaþvættislöggjöf. Ég vona að ég sé búin að svara vel en falskt öryggi er þetta.