breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Hér hefur átt sér hér stað góð umræða. Hún hefur verið góð og löng þannig að ég ætla ekki að vera mjög langorður. Það voru forréttindi að fá að sitja í stóli forseta hluta umræðunnar og hlýða á þau sjónarmið sem komu þá fram. Ég stundaði sérstaklega virka hlustun þegar hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir tók til máls. Mér fannst áhugaverð umræðan um ágæti eða óágæti bandormsfrumvarpa þar sem margar breytingar, oft á tíðum tiltölulega ótengdar hver annarri, á mismunandi lagabálkum eru gerðar í einu. Sem nýr þingmaður sem er enn þá oft að velta fyrir sér forminu, og glöggt er gests augað, að spegla mín viðhorf sem nýr þingmaður í viðhorfum þeirra sem hafa verið hérna lengur er alltaf áhugavert en það liggur náttúrlega í augum uppi að ef einmitt er verið, eins og hv. þingmaður orðaði það, að gera tiltekt á lagabálkum með svona litlum breytingum, oft á tíðum bara tæknilegum óumdeildum breytingum hér og þar, þá liggur beinast við að gera það með þessum hætti frekar en að vera að leggja fram mörg minni frumvörp.
Ég hjó líka eftir því þegar hv. þingmaður sagði að einmitt þegar svona frumvörp eru að koma í gegn, þar sem er kannski enginn einn rauður þráður í málinu sem fólk er að taka afstöðu með eða á móti heldur er verið að gera alls konar litlar breytingar á lögunum, þá var það í t.d. nefndarstarfi sem jafnvel stjórnarmeirihlutinn í nefndinni sagði bara: Nei, við erum ekki alveg til í að hleypa þessu í gegn, og nefndi dæmi um það. Ég ætla núna að hvetja mína kollega í stjórnarmeirihlutanum til að staldra aðeins við 10. gr. sem hefur stuðað mig þó að málið í heild sinni sé bara ósköp gott, það er náttúrlega mikið til tiltekt, en ég ætla að staldra við 10. gr.:
„Við 156. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. er tollgæslu heimilt að leita í innrituðum farangri farþega og áhafnar að viðkomandi fjarstöddum ef það leiðir til óhóflegra tafa eða annarra erfiðleika að hann sé viðstaddur leitina. Upplýsa skal viðkomandi um að tollskoðun hafi farið fram ef hann hefur ekki verið viðstaddur leitina.“
Það er náttúrlega mjög víða og kannski að mörgu leyti eðli stjórnmálanna að við erum að vega og meta hagsmuni og við erum stundum að skerða frelsi eða einhver borgaraleg réttindi og þá yfirleitt er það kannski til að standa vörð um frelsi einhvers annars. Við erum með ákvæði um tjáningarfrelsi en því eru sum takmörk sett, t.d. get ég ekki hvatt til ofbeldis af því að þá er ég að ganga á borgaraleg réttindi einhvers annars. Sömuleiðis erum við með ákvæði um atvinnufrelsi en ég má ekki framfleyta mér með því að selja ákveðin fíkniefni, af því að þá eru einhverjir aðrir hagsmunir sem við höfum látið vega þyngra. Ég veit samt ekki um mörg önnur dæmi þess að við séum einhvern veginn að ganga á rétt fólks, í þessu tilfelli þá að — af því að í dag er verið að leita í innrituðum farangri en við stöndum vörð um rétt fólks með því að krefjast þess að það sé viðstatt. Hér erum við þá að ganga lengra, en rökstuðningurinn fyrir því er ekki út af einhverjum öðrum hagsmunum heldur út af óskilvirkni kerfisins. Ég ætla að finna hérna í greinargerðinni heimildir tollyfirvalda til að leita í farangri að viðkomandi fjarstöddum, með leyfi forseta:
„Samkvæmt núverandi lagaumhverfi er skoðun tollgæslunnar á farangri farþega og áhafnar í öllum tilvikum bundin við að hlutaðeigandi sé gefinn kostur á að vera viðstaddur leitina […] Slíkt getur verið vandkvæðum bundið með tilliti til skipulags flughafna þegar um innritaðan farangur er að ræða og tíminn til að framkvæma leit ansi knappur.“
Þarna er hið opinbera að segja: Við nennum ekki að skipuleggja okkur þannig eða endurskipuleggja eða gera kerfið skilvirkara þannig að við getum haft þig viðstaddan þegar við leitum, við ætlum þá bara að sleppa því frekar. Þetta finnst mér ekki góð leið til að rökstyðja það að skerða borgaraleg réttindi og mér fannst það einmitt miður að í þessari umræðu hafi þingmenn minni hlutans yfirleitt verið að taka undir þetta. Ég hefði einmitt vonað að mögulega myndi þetta stinga þá eins og þetta stakk mig. Það hefur verið talað um að þetta sé gert annars staðar. Ef ég myndi koma hingað inn og leggja til að við myndum banna fólki að slá grasið sitt á helgidögum þjóðkirkjunnar þá held ég að það fengi ansi dræmar viðtökur. Ég ætla ekki að gera það. En ef ég segi að það sé þannig í dag í Noregi, er það þá einhvern veginn svona, já, já, þá er það bara alveg frábær hugmynd? Norðmenn banna fólki að slá grasið á helgidögum þjóðkirkjunnar, já, þá skulum við náttúrulega gera það. Nei, það eru ekki rök í sjálfu sér að einhverjir aðrir hafi gert þetta. Aftur á móti er hægt að horfa á það hvernig aðrar þjóðir hafa gert hlutina.
Ég hvet hv. efnahags- og viðskiptanefnd til að taka þessa 10. gr. til skoðunar en frumvarpið er miklu meira en þessi 10. gr., eins og margir hafa komið inn á í sínum ræðum, þetta er svona bandormsfrumvarp þar sem verið er að gera mjög margt í mismunandi lagabálkum. Ég er ekki hrifinn af þessari 10. gr.