156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[16:36]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni kærlega fyrir góða ræðu. Það er orðið næstum því skrýtið hvað við erum oft sammála. Þetta var skemmtilegt og ég íhugaði hvort ég mætti fara hérna upp því þetta yrði hálfgert samsvar en ekki andsvar. En mig langar til að fá að spyrja hv. þingmann í ljósi þess sem hann minntist á, að málin væru ólík sem væru í frumvarpinu og glöggt væri gests augað, og hann var að brýna kannski meiri hlutann til þess að skoða tvo hluti í þessu máli, hvort hann teldi að það væri kannski ráð að þegar frumvörp koma hér inn, ég velti þessu bara upp, þá væri skýrara hvernig lögin eru og hvernig þau eigi að vera. Auðvitað á okkur þingmönnum ekki að muna um það að fletta þessu upp en sérstaklega þegar málin eru svona mörg í einu frumvarpi þá væri það kannski til bóta að þetta kæmi skýrar fram svo það væri einfaldara fyrir okkur að glöggva okkur á breytingunni og þar með að ræða hana.

Ég ætla að láta þetta ekki alveg duga en ég ætla í þessu samsvari mínu hins vegar að taka undir með hv. þingmanni og er sammála því að við þurfum alltaf að hafa í huga skilvirkni kerfisins og að hún verði sem best.