breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur fyrir sitt samsvar og ég tek heils hugar undir það sem þingmaður segir um eðli lagafrumvarpa og laga. Það er ekki auðvelt að átta sig á hvernig lögin eru í dag og hvernig þau verða. Við erum t.d. með 4. gr. þessa frumvarps, með leyfi forseta, þar sem 3. mgr. 93. gr. laganna fellur brott, og í 5. gr. fellur brott 2. málsliður 3. töluliðar 1. mgr. 98. gr. laganna. Þá fer maður í lagabálkinn og finnur þessa grein sem á að fella brott. Síðan eru oft greinar eins og 9. gr., með leyfi forseta: „Á eftir orðunum „116. gr.“ í 1. mgr. 118. gr. laganna kemur: og 116. gr. a.“
Ég er vanur því og hef í gegnum tíðina mikið notað Google Drive þar sem maður er að vinna í skjölum og þá getur maður — þetta heitir náttúrlega „track changes“ í Word — séð ágætlega hvernig skjalið er fyrir og eftir einhverja breytingu og tekið afstöðu til þess. En við fengum nú kynningu á því áður en þingið var sett, nýir þingmenn, að það væri verið að vinna að einhvers konar slíku kerfi og þá er ég ekki að segja að það eigi að fleygja þessu hérna, en það væri mjög góð viðbót að vera bæði með þetta gamla, góða fyrirkomulag en geta líka séð hvernig lögin líta út í dag og síðan, með „track changes“, hvernig lögin verða eftir að eitthvert frumvarp verður hugsanlega samþykkt.