breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Við verðum bara að vona að hér sé einhver sem horfir og er að fylgjast með sem kannski tekur þetta mál áfram og gerir bragarbót á. En ég ætla aðeins að halda áfram með samsvarið. Ég er sammála hv. þingmanni að við þurfum alltaf að passa það, þegar kemur að því að skerða borgaraleg réttindi, að það verður að vera að mjög vel ígrunduðu máli, ef það er gert. En hv. þingmaður sagði og mér líkaði það vel: Ef það er í lagi í Noregi, er það þá í lagi hér? Eru það rök? Ég er svo sammála, það er alltaf verið að tala um að við séum að bera okkur saman við löndin í kringum okkur. Já, stundum er það gott. En það er ekki alltaf gott.
Spurningin mín er, af því að ég vil ekki tefja umræðuna og ekki endilega nýta fullan tíma, kem bara beint að spurningunni: Hvað finnst þá hv. þingmanni ef það er gert í Evrópusambandinu? Er það þá alltaf í lagi?