156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[16:43]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir skemmtilega ræðu. Það er alltaf gaman þegar ræður tengjast einhvern veginn hlutum sem maður á auðvelt með að tengja við sjálfur enda er það almennt góð kennsluaðferð. Ef þú tengir við hlutina þá ertu líklegur til að taka eftir. Ef mér skjátlast ekki er Ingvar Þóroddsson einmitt kennari, hefur kennt, þannig að það er stutt að sækja það hjá honum.

En það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um er varðandi það sem hann gagnrýndi okkur í minni hlutanum fyrir að hafa ekki gagnrýnt, þ.e. leit í töskum að fólki fjarverandi. Ég get reyndar að ákveðnu leyti tekið undir það, bara verið sammála hv. þingmanni. En mig langar kannski að fá hans sýn á það hvernig þetta ætti að vera í staðinn og svo líka það hvort þeir í tollinum, sem eru að fara í gegnum kannski mjög persónulegar eigur fólks, þurfi að vera einhvers konar sérþjálfaðir starfsmenn, af því að í farangri fólks geta verið alls konar hlutir sem eru bara ofboðslega persónulegir og ekki þess eðlis að farþegar sem eiga sér einskis ills von lendi í því að allt í einu er einhver ókunnugur farinn að gramsa í mjög persónulegum hlutum. Hvernig myndi þingmaðurinn vilja hafa þetta?