breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingvari Þórhallssyni fyrir gott svar. Ég er bara nokkuð sammála þessu. Mér finnst að friðhelgi einkalífsins ætti að vera verulega rík og það ætti að vera, og er nú líklegast í þessu, einhver rökstuddur sterkur grunur ef menn fara að opna töskur að fólki fjarstöddu. En það er alltaf tilgangurinn sem helgar meðalið. Maður veit ekki alveg hvar þannig verkefni enda. En svo ég taki aftur til máls um það sem hv. þm. Ingvar Þóroddson nefndi í sinni framsögu með dæmið frá Noregi, sem var ekki bara skemmtilegt heldur líka vonandi ekki raunverulegt — já, hann kinkar hér kolli og segir það vera raunverulegt, það gleður mig enn þá meira. Hvenær eigum við að taka mark á því sem aðrir gera og hvenær ekki? Og eru það einhverjir sérstakir einstaklingar sem ættu að dæma um það hvenær einhverjar reglur eða aðferðir eru góðar og við getum lært af öðrum? Ég er sammála því að þetta getur verið þannig að það getur orkað tvímælis að taka eitthvað upp. Það er ekki alltaf endilega best og hentar ekki alltaf endilega á Íslandi það sem hentar kannski í Ástralíu. Hvernig sér hann það fyrir sér? Hverjir eiga að ákveða þetta? Þetta er ekki einu sinni heimspekileg spurning en mig grunar að hann hafi svarið við henni.