156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[16:49]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir sitt andsvar og spurningu. Mér finnst þetta mjög góð spurning og ég hef oft velt henni fyrir mér. Hv. þingmaður spurði: Hver á að ákveða hvenær og dæmi frá öðrum löndum, er það eitthvað sem við eigum að horfa til og hvenær ekki? Mitt mat að það er enginn sem á að ákveða það, heldur frekar að bara það að eitthvað sé gert, segjum í Svíþjóð, í Skandinavíu, það eitt og sér eru ekki rök fyrir því að gera hlutina, hvort sem um er að ræða einhverja vinnumarkaðslöggjöf eða hvað sem er. En við getum hins vegar skoðað hvernig hlutir eru gerðir með mismunandi hætti í mismunandi löndum og hvort þeir hafi skilað árangri. Við erum kannski með markmið um að vera með sem skilvirkast skattkerfi og þá getum við skoðað öll möguleg skattkerfi og séð hvar mismunandi útfærslur hafa náð þeim markmiðum sem við viljum ná með besta hætti. Þá myndum við kannski taka það og aðlaga að okkar veruleika. En bara það að eitthvað sé gert með ákveðnum hætti í t.d. Svíþjóð og Noregi eru ekki rök fyrir því að það sé gott og frábært. Það hefur reyndar farið í taugarnar á mér að margir vilja oft horfa til sérstaklega Skandinavíu í ákveðnum málaflokkum en vilja síðan ekki gera það í öðrum, þ.e. bara af því að Svíþjóð sé með X lög um eitthvað þá séu það rök með því. En ef maður myndi aftur á móti segja: Já, Svíar eru líka með svona skólakerfi, og ég held að hv. þm. Jón Pétur Zimsen viti alveg hvert ég er að fara, þá er náttúrlega svarið: Nei, nei, nei, við viljum alls ekki fara í sömu átt og Svíar. Það er svolítið verið að velja hvenær það að eitthvert ákveðið land hafi gert eitthvað séu rök með því að gera það og hvenær ekki.