156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.

260. mál
[16:51]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Virðulegur forseti. Frumvarpið sem við erum að ræða hérna í dag tekur á fjölmörgum breytingum á lögum og er oft kallað bandormur þegar svona frumvarp er sett saman, breytingar á mörgum ólíkum lögum, tekur á skattamálum, tollamálum og eftirliti með fjárflutningum. Þessu er ætlað að styrkja íslenska löggjöf, bæta eftirlit með fjárflutningum og tryggja að við fullnægjum alþjóðlegum skuldbindingum, þar á meðal þeim sem við höfum undirgengist í tengslum við varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Eitt af lykilatriðunum í frumvarpinu er breyting á tilkynningarskyldu um flutning á fjármunum á milli landa. Það sem er nýtt er að tilkynningarskyldan verður útvíkkuð til að ná einnig til fjárflutninga sem fara með póstsendingum. Þarna er verið að setja póstsendingar undir líka, ekki bara þegar fólk fer með reiðufé á milli landa. Það er bæði fyrir sendendur og móttakendur fjárhagslegra sendinga. Fólk þarf þarna að tilkynna ef það fær fjármuni í póstsendingum sem eru yfir u.þ.b. 1,5 milljónum króna eða 10.000 evrum. Fólki verður gert að tilkynna tollyfirvöldum þetta. Við vonum bara að þetta verði tekið vel fyrir í nefndinni og að ef þetta verða lög verði fólk upplýst um þetta þannig að einhverjum verði ekki á að brjóta lög með því að senda of háar upphæðir á milli landa. Þetta getur alveg verið mikilvægur þáttur í baráttunni gegn peningaþvætti og hryðjuverkum en póstþjónusta er fjölbreytt og sífellt meira notuð, bæði af einstaklingum og fyrirtækjum og það verður að tryggja að þetta kerfi verði einfalt og framkvæmanlegt, bæði fyrir notendur og stjórnvöld.

Svo eru hérna önnur ákvæði, um heimild til tollyfirvalda. Frumvarpið veitir tollyfirvöldum auknar heimildir til að framkvæma leit á innrituðum farangri farþega, og um þetta hefur verið talað töluvert mikið í dag, bæði farangri farþega og áhafna, þó að viðkomandi sé ekki viðstaddur. Ég hef velt þessu fyrir mér og hvenær mikill grunur réttlæti það að fara ofan í farangur fólks að því fjarstöddu. Ég vona að þetta verði, eins og hv. þm. Ingvar Þóroddsson nefndi hér áðan, rætt í þaula í nefndinni, því að við þurfum að hafa frekar strangar kröfur um það hvenær farangur er skoðaður og hvenær ekki, hvað þá ef hann er skoðaður að fólki fjarstöddu. Það getur gerst að það séu tafir þegar farangur flyst á milli landa og fólk er ekki með farangurinn sinn og þá gæti verið farið í gegnum farangursstæður og fólk sem er kannski með viðkvæmar persónuupplýsingar í farangrinum sínum gæti endað á því að það væri farið í gegnum farangurinn. Eins og ég segi, maður þarf alltaf að vega og meta hvenær stjórnvöld eiga að fara yfir okkar persónulegu línu í þessu og passa að þessi breyting verði ekki of víðtæk og að það sé eftirlit með því hvernig fólk gerir þetta til að forðast misnotkun.

Í þessum bandormi er líka annað, þ.e. frumvarpið leggur til breytingar á viðurlögum við brotum á tilkynningarskyldu þar sem sektir verða þá 20% af verðmæti þeirra fjármuna sem ekki var tilkynnt um. Þetta þýðir að ef þú tilkynnir ekki um fjármunina þá er hægt að sekta fólk og fyrirtæki um 20% af þessum fjármunum. Ef það eru 2 milljónir sem fara á milli þá er hægt að sekta fólk um 400.000 sem eru 20% af 2 milljónum. Það er mikilvægt að þessar breytingar nái að skapa skýrleika og geri það auðveldara fyrir tollgæsluna að beita viðurlögum en það verður að tryggja að sektir séu sanngjarnar og þær séu ekki of háar, hvorki fyrir einstaklinga né fyrirtæki ef menn gera mögulega óviljandi mistök, því að það getur alltaf komið fyrir. Það er spurning hvort það eigi að notast við fast hlutfall af verðmæti fjármuna eða sektir og ég er viss um að nefndin fer yfir þetta.

Það eru þarna breytingar á tekjuskattslögum og það eru nýjar heimildir fyrir skattaðila til að kæra ákvörðun ríkisskattstjóra. Þessar breytingar eru mikilvægar því að þær tryggja að skattaðili geti kært synjanir ríkisskattstjóra um breytingar á fyrri ákvörðunum, þar á meðal ákvörðun um skattstofn eða skattaálagningu ef hún er ófullnægjandi eða óheimil. Þetta er mikilvæg trygging fyrir réttlæti og áreiðanleika í skattalöggjöfinni. Ég held að það sé mikið framfaramál.

Einnig er lögð til breyting á tollskrám sem tengjast flúoruðum gróðurhúsalofttegundum, sem sagt lofttegundum sem skapa gróðurhúsaáhrif. Það eru lofttegundir sem fara þá upp í lofthjúpinn og hleypa varmageislun inn til jarðarinnar en þegar geislunin ætlar út þá endurkasta þessar lofttegundir varmanum inn þannig að í raun virkar þá jörðin eins og eitt stórt gróðurhús. Það sem við þekkjum sem gluggaveður er oft gott dæmi um þessi gróðurhúsaáhrif sem jörðin verður þá fyrir. Þegar sólin skín á okkur í gegnum glugga er hlýtt inni en kannski kalt úti. Sólin kemst inn, það er kalt úti en það verður mjög heitt inni. Það verður uppfærð skrá og það er held ég bara mjög gott og mikilvægt að samræma íslenska löggjöf við alþjóðlega staðla og tryggja að nýjar breytingar á tollskrám geti farið fram án þess að skapa óþarfaóvissu.

Svo eru hérna viðurlög við brotum á tollalögum. Það er lagt til að lögaðilar geti verið sektaðir fyrir brot á tollalögum þótt brotið hafi verið framkvæmt af starfsmönnum eða fyrirsvarsmönnum þeirra. Þetta er mikilvægt skref í að tryggja að fyrirtæki beri ábyrgð á hegðun sinni og fari ekki á undan réttinum til að hagnast á brotum. Ég held að þetta sé líka gott en það þarf að ræða þetta vel.

Svo er það kannski það sem skiptir einna mestu máli fyrir fólkið á landsbyggðinni, það er jöfnunargjald á raforku. Það er gert ráð fyrir hækkun á gjaldinu sem greiðist af raforku, sérstaklega fyrir dreifbýli, og hækkunin á jöfnunargjaldinu er úr 0,41 kr. í 0,76 kr. á kílóvattstund. Þetta er mikilvægt til að ná að fullu jöfnun kostnaðar við dreifingu raforku þannig að fólkið úti á landi sé ekki að borga meira fyrir orkuna vegna þess að það býr lengra frá, ekki náttúrlega þar sem raforkan verður til heldur þar sem spennan kannski er til að ýta raforkunni eftir rafstrengjunum. Þetta er sérstaklega mikilvægt til að styðja dreifbýlið og jafna raforkukostnað við þéttbýlið.

Eftir þessa yfirferð þá kannski læðist einhvern veginn að manni — manni finnst alla vega skrýtið að þessum ólíku málum sé pakkað saman í svona vöndul. Þetta minnir svolítið á lán sem voru til í Bandaríkjunum sem ýttu af stað fjármálakreppunni þar sem hin ýmsu ótryggu lán voru sett inn í umbúðir sem fólk vissi ekkert hvað var inni í og á endanum keypti og svo voru engin veð fyrir þeim lánum, sem hrundi af stað fjármálaóreiðunni. Ég ætla ekki að segja að þessi bandormur geri það en þetta er nýtt fyrir mig að sjá nokkur frumvörp í einum pakka. Ég veit að það er hefð fyrir þessu og þetta er líklegast ágætt og ég mun þá læra af þessu og ég fylgist vel með hvernig þessum málum vindur fram í meðförum nefndar og svo í meðförum þingsins þegar á líður. — Til að tefja ekki þá ákvað ég að nýta ekki allan ræðutímann sem ég hef. Ég hef hérna nokkrar mínútur í viðbót en ætla bara að láta kyrrt liggja.