156. löggjafarþing — 26. fundur, 4. apr. 2025.
breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
260. mál
Forseti. Ég vil þakka þingmönnum fyrir ítarlegar umræður í þessu máli. Hér hefur komið fram stuðningur við marga hluta þessa máls og umræða jafnframt sem hefur verið meira á almennum nótum. Ég reikna með því að eins vönduð og ítarleg og sú umræða hefur verið þá sé hv. efnahags- og viðskiptanefnd vel í stakk búin að takast á við málið þegar þar að kemur.