breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og ég átta mig á því að þetta hefur verið frekar ítarleg umræða eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Hér er um að ræða lagabálk sem hefur verið svolítið „pirr“ á ýmsum vettvangi. Eins og ég fór yfir í ræðu minni þá er ábyrgðin, að við höldum, enn þá hjá dómsmálaráðherra, svona stóru línurnar. En mig langaði að vita hjá hæstv. ráðherra hvort hann hefði heyrt þá umræðu og hvatningu mína til þess að ríkisstjórnin færi í heildarendurskoðun á þessum lagaramma og gerði þá úttekt sem við vorum búin að óska eftir á annars vegar lagarammanum en ekki síður framkvæmdinni, því að mig grunar að framkvæmdin hafi kannski, hvað á ég að segja, gullhúðast svolítið eða blýhúðast.