breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar spurningu. Hún víkur að þeim hluta þessa pakka sem snýr að FATF. Eins og ég vék að í inngangi þá lenti Ísland á svokölluðum gráum lista við síðustu úttekt með afleiðingum sem við viljum ekki endurtaka. Næsta úttekt er fyrirhuguð á næsta ári en ég tek undir þau sjónarmið sem hér hafa komið í dag að það skiptir miklu máli að þrátt fyrir að við séum öll sammála um nauðsyn þess að berjast gegn hryðjuverkum og skipulagðri glæpastarfsemi er mikilvægt að sú frelsisfórn sem er færð í því skyni standist fyllilega skoðun þegar borinn er saman kostnaður og ábati.