breyting á ýmsum lögum um skatta, tolla og gjöld.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir aðra ágæta spurningu. Nú er hún reynslumikill þingmaður og veit að bandormar eiga sér langa sögu og að tilurð þeirra er til hægðarauka vegna þess að í mörgum tilfellum er um óverulegar breytingar á lögum að ræða. Við hljótum að vera sammála um að þarna takast þó á sjónarmið sem hv. þingmaður kemur inn á varðandi skýrleika þess sem lagt er fyrir Alþingi og til þess að tryggja að mál fái góða umræðu og hins vegar það að koma frá minni lagabreytingum á einhvern hátt. Um það höfum við annars vegar dæmi, eins og hv. þingmaður nefnir, í tengslum við fjárlög þar sem augljóslega er um margar minni háttar breytingar að ræða. Í öðrum tilfellum er um samsafn minni lagabreytinga að ræða. Almennt séð tek ég undir það sjónarmið að bandorma sem fyrirbæri á að nota sparlega. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)