156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:20]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hvet efnahags- og viðskiptanefnd sig til að horfa til þeirra sjónarmiða að fara þær leiðir, ef tveir valkostir eru til staðar, sem leggja minni kostnað á fyrirtækin sem síðan aftur speglast yfir til endanotenda þeirra. En mig langar í þessu samhengi að nefna, þó að það tengist málinu ekki þráðbeint en er samt augljóslega nátengt, að við ræðum hér sem sagt frumvarp til laga um stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaða og hæstv. ráðherra segir réttilega að eitt af mestu áhyggjuefnum okkar liggi í þessum ógnum. Það má vera að hæstv. ráðherra hafi úttalað sig um þetta í öðru samhengi en það hefur þá farið fram hjá mér, en mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í afstöðu hans til reiðufjár og notkunar reiðufjár til framtíðar og hvort ráðherra sér fyrir sér að leggja til einhverjar breytingar í ráðherratíð sinni varðandi svigrúm til notkunar þess. Við erum minnug þess að fyrrverandi fjármálaráðherra hins ágæta flokks Viðreisnar hafði miklar skoðanir á þeim málum.