stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir alveg ljómandi góða spurningu. Reiðufé er áfram lögeyrir á Íslandi. Íslenskir peningaseðlar, íslensk mynt er lögeyrir á Íslandi og veitir okkur á vissan hátt ákveðinn grundvallarviðnámsþrótt. En það er hins vegar þannig að einhvern veginn er raunveruleikinn farinn að naga í hælana á þessu aldagamla fyrirkomulagi greiðslumiðlunar og það vandamál sem við fyrst og fremst glímum við í dag er tregða smásala, markaðsaðila, til að nota reiðufé. Fyrir því eru bæði þær skýringar að það er kostnaðarsamt og því fylgir ákveðið flækjustig og áhætta fyrir minni aðila. Það hefur gert að verkum að það er ódýrara bæði fyrir viðskiptavininn og þann sem selur að takmarka notkun á reiðufé. Það er hins vegar þannig að vegna aukinnar ógnar sem við sjáum bara og áhættu þá hefur verið mjög gott samstarf á milli fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans um að tryggja að reiðufé sé tiltækt ef til þarf að taka. Þarna hafa skoðanir fjármálaráðherrans lítið að segja og tækniframfarir nútímans ráða þarna mestu.