stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Ég verð nú að segja að mér hrýs alltaf svolítið hugur við því þegar við erum að innleiða þessar stóru reglugerðir frá Evrópusambandinu, aðallega hvað það varðar hvort þingmenn muni setja sig nógu vel inn í málið og það muni fá nógu djúpa og mikla umræðu í nefnd. Þetta eru oft flókin mál og þar af leiðandi auðvelt að skauta svolítið fram hjá þeim. En reynslan hefur verið sú að það er gott að vera með svipað regluverk og nágrannar okkar í Evrópu þegar að þessu kemur og manni heyrist almennt atvinnulífið hafa verið þess fylgjandi, alla vega þegar kemur að því að innleiða regluverkið. En hér segir í kaflanum um áætluð fjárhagsáhrif: „Ekki liggur fyrir tölulegt mat Seðlabankans á viðbótarkostnaði vegna DORA og/eða hvort fjölga þurfi stöðugildum og þá hve mikið.“ Af setningunni fyrir ofan má ráða að viðbótarkostnaði vegna innleiðingu DORA verði mætt með hækkun eftirlitsgjalda.
Mig langar að spyrja hvort hæstv. ráðherra hafi einhverja vitneskju um það, síðan þetta var útgefið, hvort Seðlabankinn sé búinn að áætla þennan kostnað með einhverjum hætti. Annars myndi ég beina því til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að skoða það því að það vill oft brenna við líka að á sama tíma og Samtök atvinnulífsins eða aðrir hagsmunaaðilar atvinnulífsins hafa hvatt okkur áfram í að innleiða eitthvað þá er það svo að þegar kemur að því að greiða fyrir kostnað sem því fylgir þá eru ekki allir jafn sáttir og sammála.