156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson) (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ljómandi góða spurningu. Nú vill svo til að ég get ekki svarað henni, ég verð sem sagt að viðurkenna að ég veit ekki hvort slík skoðun hafi farið fram eða mat á hugsanlegum umframkostnaði. En ég tek undir orð hv. þingmanns um að það er mikilvægt að hv. efnahags- og viðskiptanefnd kynni sér það.