stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Virðulegur forseti. Án þess að lengja þessa umræðu mikið vil ég bara beina því til þeirra sem sitja í þessari nefnd að ég held að það sé mikilvægt að eiga þetta samtal við fulltrúa Seðlabankans þegar þeir munu væntanlega mæta á fund nefndarinnar. Ég segi þetta af reynslu vegna þess að það hefur oft á tíðum borið á því að það er óljóst hvað eitthvað mun kosta og svo samkvæmt lögum á að kasta þessu aftur til atvinnulífsins og þá eru auðvitað ekki allir jafn sáttir. Það kemur kannski inn á fyrra andsvar hér að það skiptir auðvitað líka mjög miklu máli hvernig regluverkið er framkvæmt. Þetta tengist líka því sem við vorum að ræða hér áðan, að lagatextinn er eitt en svo er annað hvernig framkvæmdin er, það eigi sér ekki stað einhvers konar blýhúðun þegar út í sjálfa framkvæmdina er komið. Og eins mikilvæg og netöryggismál og öryggismál tengd fjármálastarfsemi eru, við getum öll verið sammála um það, þá þarf eftirlitið líka að vera þannig að það virki raunverulega og að kostnaður, tími og annað sem fer í það sé ekki út fyrir öll mörk.