156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra framsöguna. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á hér í ræðu sinni þá er lítið svigrúm til að víkja frá efnisatriðum innleiðingarinnar. Það kemur fram í samráðskafla greinargerðar að Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu séu eini aðilinn sem sendi umsögn inn vegna málsins í samráðsgátt stjórnvalda. Mig langar að leggja nokkur orð í púkkið til að draga fram þær áhyggjur sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu flögguðu og sömuleiðis kannski undirstrika mikilvægi þess að það litla svigrúm sem til staðar er við innleiðinguna sé nýtt til einföldunar og til að draga úr kostnaði á fyrirtæki sem undirorpin eru þessu regluverki og notast við það eftir atvikum því að sá kostnaður endar hvergi nema á þeim heimilum og fyrirtækjum sem þjónustuna nýta. Eins og segir hér, með leyfi forseta:

„Frumvarpsdrög voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda“ — og síðan tilgreint hvenær og númer og það allt saman — „og barst ein umsögn, frá Samtökum fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Í umsögninni kom fram að samtökin fögnuðu innleiðingu DORA í íslensk lög og styðja markmið hennar.“

Sem er bara gott að heyra, og þá lít ég svo á að sá hluti sé frá í umræðunni. Þó bentu samtökin á að innleiðingin verði áskorun vegna umfangs og ítarleika regluverksins og vöruðu jafnframt við því að áætlanir um gildistöku og viðurlög kunni að vera óraunhæfar með tilliti til smærri markaðsaðila. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á hér áðan þá eru ákveðnir aðilar undanþegnir regluverkinu en ég bara vísa því til hv. efnahags- og viðskiptanefndar að skoða það sérstaklega hvort fær leið eða ástæða sé til að eftir atvikum undanþiggja fleiri eða létta eitthvað á skrúfunum gagnvart þeim sem yrðu fyrir hlutfallslega mest íþyngjandi kostnaði af þessu.

„Þá áréttuðu samtökin að innleiðingin gæti haft kostnaðar- og samkeppnisáhrif, sér í lagi fyrir smærri aðila á fjármálamarkaði, og mótmæltu á sama tíma að innleiðingin leiði til hækkunar eftirlitsgjalds.“

Þetta er nú svona það sem ég vil sérstaklega leggja áherslu á hér, að við leitum leiða — jafnvel í innleiðingarmáli sem þessu, þar sem talsmenn þeirra fyrirtækja sem heyra beint undir regluverkið taka undir mikilvægi þess að regluverkið sé innleitt — til þess að nýta það svigrúm sem er til að draga úr íþyngjandi áhrifum regluverksins án þess að gefið sé eftir í meginmarkmiðinu um að styrkja stafrænan viðnámsþrótt fjármálamarkaða.

Hér er tekið fram að það hafi verið horft til athugasemda í umsögninni við frágang frumvarpsins. Það væri kostur ef það væri dregið fram með ítarlegri hætti í hverju það fólst, að hvaða leyti var brugðist við athugasemdum Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Sömuleiðis held ég að það væri skynsamlegt að fyrir nefndina kæmu upplýsingar, ef hæstv. ráðherra er ekki með þær á takteinum hér í lokaræðu sinni, sem ég tel líklegt að hæstv. ráðherra fari í, að þar komi fram greining á því hvers lags svigrúm er þó til í aðlögun þessa regluverks.

Stjórnvaldssektarákvæðið er sérstaklega gagnrýnt í umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, jafnframt sagt að það hafi tekið breytingum frá því sem gert var ráð fyrir í drögunum sem birt voru í samráðsgátt og þar á meðal hámarksfjárhæðarviðmið sekta á einstaklinga sem nú er lagt til að verði 65 milljónir og er þar horft til fyrirmyndar í öðrum lögum, samanber skýringar við 5. gr. frumvarpsins. Skýringar við 5. gr. frumvarpsins eru tvær þéttskrifaðar síður þannig að ég ætla ekki að leita að þessari upptalningu þar en ég bara ítreka að í öllu samhengi verði horft til þess mikilvæga atriðis að leitað verði leiða til að draga úr íþyngjandi kostnaði á sama tíma og við erum meðvituð um að þetta er gríðarlega mikilvægt hvað varðar starfsemi á fjármálamarkaði hér heima.

Ég spurði hæstv. ráðherra í andsvari um afstöðu ráðherrans til reiðufjár og notkunar þess. Það var kannski svolítil stríðni í þeirri spurningu í ljósi sögunnar. Síðasti fjármálaráðherra Viðreisnar hafði, ég ætla í gamansömu tómi að leyfa mér að segja að ráðherrann hafi haft ímugust á tíuþúsundkallinum hið minnsta og kannski náði sú tilfinning lengra niður í verðminni seðla. Auðvitað er rétt að þróun er að verða með tilteknum hætti og tækniframfarir að verða en ég geld varhuga við því að við gerum eitthvað í regluverkinu hjá okkur sem ýtir undir það að reiðufé, sem er lögeyrir á Íslandi, eigi erfiðara um vik hvað það varðar að virka á markaðinum. Vissulega eru fyrirtæki sem vilja frekar fá greiðslur til sín með rafrænum hætti en við alla vega sem löggjafi held ég að ættum að fara okkur varlega í að ýta undir þá þróun því að ef illa fer í einhverju samhengi sem þessu sem hér er verið að fjalla um þá verður reiðuféð — enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, ætli sé ekki haganlegast að lýsa því þannig ef alvarlegt áfall verður, bakslag, ef við notum það hugtak í notkun á rafrænum millifærslum og þar fram eftir götunum.

Áhrifamat frumvarpsins er hér nokkuð ítarlegt á réttum tveimur blaðsíðum og það kannski stendur aðeins út þar mikilvægi greiningar á fjármálamörkuðum bara hvað rekstraröryggi þeirra varðar, en það eru kannski minni upplýsingar um greiningu á líklegum kostnaði fyrir „kerfið“ sem fellur þá til að meginhluta til auðvitað hjá þeim fyrirtækjum sem undir þetta regluverk falla og það nýta.

En aftur er hér, eins og segir, með leyfi forseta:

„Mögulegum viðbótarkostnaði vegna aukinna verkefna Seðlabankans með innleiðingu DORA í landsrétt má gera ráð fyrir að verði mætt með hækkun eftirlitsgjalds samkvæmt lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og skilavald […] Samræmingin sem felst í DORA frá því sem nú er“ — svo er tilvísun þarna — „er jafnframt að einhverju leyti hagkvæm fyrir eftirlitsaðilann.“

Þannig að maður vonar að þar komi fram kostnaðaraðhald. Síðar segir áfram, með leyfi forseta:

„Ekki liggur fyrir tölulegt mat Seðlabankans á viðbótarkostnaði vegna DORA og/eða hvort fjölga þurfi stöðugildum og þá hve mikið.“

Reynslan er auðvitað sú að verkefni sem þessi, umfangsmikil sem þau kunna að vera og blasir við að raunin er í þessu samhengi, kalla á umtalsverðan kostnað sem verður ekki borinn á endanum af neinum öðrum en fyrirtækjum og heimilum sem fjármálaþjónustu nota. Þannig að ég bara ítreka þessi varnaðarorð mín og hvatningu til þess að leita allra leiða til þess að nýta það litla svigrúm, eins og hæstv. ráðherra orðaði það, til að leita fjárhagslega haganlegustu leiða og minnst íþyngjandi til að innleiða þetta regluverk hér í íslenskan rétt.