156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hér segir, með leyfi forseta:

„Ekki liggur fyrir tölulegt mat Seðlabankans á viðbótarkostnaði vegna DORA og/eða hvort fjölga þurfi stöðugildum og þá hve mikið.“

Ég held að þetta í sjálfu sér rammi inn að það blasir við að hv. efnahags- og viðskiptanefnd kalli eftir þessum upplýsingum því það setur líka aðhald á þá sem þjónustuna veita á síðari stigum og aðlaga kerfið, ef við köllum það svo, því sem undir það heyrir. Það setur ákveðið aðhald á slíka aðila að hafa sett fram mat. Vissulega er mat alltaf nokkurri óvissu undirorpið en ég held nú samt heilt yfir að aðili eins og Seðlabankinn eigi að hafa svona þokkalega skýra sýn á hver hin afleiddu áhrif eru. Ég er raunar þeirrar skoðunar að þetta ætti að vera algjör meginregla í þinginu. Ég er ekki að gagnrýna það sérstaklega í þessu frumvarpi. Ég hef gagnrýnt það harðlega í mörgu öðru samhengi en læt það vera hérna. Mjög oft þykir mér kostnaðarmat og í raun áhrifamat frumvarpa ekki sérstaklega vel eða ítarlega unnið, svo ég lýsi því mildilega. Ég held því að nefndir þingsins ættu að hafa það sem meginreglu þegar áhrifamatið innifelur ekki tölulegar upplýsingar um mat á afleiddum kostnaði að kalla eftir því að það verði unnið áður en mál eru afgreidd til 2. umræðu eftir að mál hefur farið í gegnum meðferð þingnefndar í fyrsta sinnið.