156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:41]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að eiga samtal við mig varðandi þessa mikilvægu þætti málsins. Stundum er það þannig þegar komið er að innleiðingarfasanum eftir svona langt ferli eins og þetta og mikilvægt að við gerum ráð fyrir því, leyfi ég mér að segja, að eiginlega sé búið að hnýta alla enda, að það sé bara svolítið okkar að klára málið. Þá komum við inn á þessa gullhúðun eða blýhúðun sem við höfum talað um. Alveg óháð því hvar menn hafa staðið á undanförnum árum í stjórn eða stjórnarandstöðu, þvert á flokka, hafa menn verið að nefna þetta hvað það varðar að við fáum góðar upplýsingar um kostnaðarmat og hvernig hlutirnir verða í praxís þegar við förum að innleiða viðkomandi löggjöf. Um svona mikilvæg mál eins og netöryggismál, viðnámsþrótt þessa kerfis, þá held ég að mjög brýnt sé fyrir okkur að fá eins glöggar upplýsingar og við getum þegar málið fer til nefndar.

Mig langar í síðara andsvari að spyrja hv. þingmann aðeins út í þetta, vegna þess að fram kemur í greinargerðinni að við höfum þurft eins og nágrannaþjóðir að reyna að efla okkar viðnámsþrótt frekar hratt leyfi ég mér að segja, því að ógnin vex með hverjum mánuðinum sem líður. Eitt af því sem við höfum verið að gera er að styðja við CERT-IS, okkar öfluga fólk, til að mæta netógnum. Hér erum við að innleiða evrópska löggjöf en það er spurning hvort hv. þingmaður sjái fyrir sér að við reynum að dreifa eggjunum í körfunni með því að eiga samstarf ekki bara við Evrópusambandið varðandi þessi mikilvægu mál heldur ekki síst Breta og Bandaríkjamenn.