156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:43]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég tel að ég byrji á stuttu útgáfunni af svarinu við spurningunni sem kom við lok seinna andsvars, sem ég þakka fyrir. Ég er holt og bolt fylgjandi auknu samstarfi bæði við Bandaríkin og Bretland á sem víðustum grunni. Ég held að við höfum kannski, þótt það hafi verið mismunandi eftir ríkisstjórnum og utanríkisráðherrum undanfarin kjörtímabil, svigrúm til að bæta þar úr og auka í töluvert frá því sem nú er og virðist vera.

Varðandi kostnaðarmat og áhrifamat þá rifja ég stundum upp, aðallega með sjálfum mér, mál sem var til meðferðar fyrir nokkrum þingum sem sneri að samræmdri móttöku flóttafólks. Þegar málið var fyrst lagt fram var kostnaðarmatið upp á 23,7 milljónir. Svo kláraðist málið ekki og var lagt fram aftur. Mig minnir að við þriðju framlagningu hafi kostnaðarmatið verið komið upp í 28 milljónir. Sirka ári eftir að málið var samþykkt spurði ég hæstv. þáverandi ráðherra að því hver kostnaðurinn hefði verið við þessa lagasetningu, hver viðbótarkostnaðurinn hefði verið frá fyrra fyrirkomulagi það árið: 800 milljónir. Þingheimur getur alveg tekið þá ákvörðun að bæta við 800 milljónum með þessum hætti. Það er meiri hlutanum frjálst hverju sinni. En það er þetta kostnaðarmat sem er svo illa brogað stundum og það blasir við. Í því tilviki var málið tekið inn til nefndar á milli umræðna. Og hverjir voru spurðir hvort kostnaðarmatið væri rétt? Þeir sem sömdu það. (Forseti hringir.) Það er þetta sem ég er alltaf að gagnrýna hér í pontu, þessi taktur sem við verðum að ná okkur út úr, (Forseti hringir.) að kostnaðarmat sé álitið víkjandi í þessari vinnu okkar allri.

(Forseti (KÁB): Forseti vill árétta að þingmenn virði ræðutíma.)