156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:46]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég mun sannarlega að reyna að virða minn ræðutíma en ég er hér kominn upp í ræðu og ég veit nú ekki alveg hvort klukkan er rétt, hún er stillt á tvær mínútur. Ég veit ekki hversu fljótur ég verð að fara yfir þetta en ég skal gera mitt besta. Ég ætla ekki að lengja umræðuna meira en þörf krefur. Hér er aftur á móti um mjög mikilvæga lagasetningu að ræða sem á sér töluverðan aðdraganda eins og kemur fram í greinargerðinni. Það sem ég vil kannski fyrst og fremst benda á og vonast eftir að verði lyft upp við meðferð málsins í þinginu er hversu veigamikið það er að við séum með varnir sem þessar, að við tryggjum að við séum með góðan viðnámsþrótt varðandi þessa mikilvægu innviði sem við treystum öll á alla daga og tökum auðvitað sem sjálfsögðum hlut. Og þó að ég sé nú ekki mikill Evrópusinni þá fagna ég því að við séum að taka hér upp löggjöf sem byggir á okkar samstarfi við Evrópusambandið, EES-samstarfið, og við höllum okkur að því að reyna að tryggja það að við séum a.m.k. ekki í verri málum hvað netöryggi varðar heldur en þær þjóðir sem við berum okkur saman við.

Eins og sést í málsmeðferðinni þá erum við loks komin hér með íslenska löggjöf og þess vegna vil ég líka brýna þingheim að tryggja það að við séum ekkert að ganga lengra en þörf krefur, sérstaklega varðandi kostnað. En það má vera að það séu einhverjar séríslenskar aðstæður sem gera að verkum að við þurfum að hafa löggjöfina a.m.k. tónaða að íslenskum veruleika. Þá er ég fyrst og fremst að velta fyrir mér nettengingum til og frá landinu til að mynda. Ég fagna þeirri vinnu sem hefur átt sér stað meðal stjórnvalda varðandi CERT-IS og það teymi sem bregst við netógnum hér á landi. Svona viðnámsþróttur er algerlega nauðsynlegur og hann er partur af þjóðaröryggismálum hér á landi sem koma til með að fá aukið vægi á næstu misserum og árum.

Ég vildi bara koma hér upp, virðulegi forseti, og nefna mikilvægi löggjafarinnar. Ég styð hana heils hugar og hef fengið að koma að þessu ferli á fyrri stigum. Eins og segir í greinargerðinni þá er markmið frumvarpsins að stuðla að stafrænum viðnámsþrótti. Það liggur fyrir að það felst ákveðin áhætta í því að geta haft stafrænar lausnir. Þær einfalda okkur lífið verulega frá degi til dags en þó að það sé virkilega hagkvæmt og gott fyrir okkur að geta treyst á þessar fjarskiptalausnir og upplýsingalausnir þá þurfum við að tryggja öryggi þeirra á hverjum tíma.

Hér í andsvari mínu við hv. þm. Bergþór Ólason nefndi ég mikilvægi þess að við horfum í það að við séum ekki að íþyngja þeim sem koma til með að þurfa að innleiða þessi lög meira en þörf krefur. Það hef ég brýnt hér fyrir þingheimi og geri ráð fyrir því að málið fái góða og vandaða umfjöllun í efnahags- og viðskiptanefnd þegar þar að kemur. — Ég hef lokið máli mínu.