156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[17:50]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér er mjög yfirgripsmikið frumvarp sem við erum að ræða um enn mikilvægara mál, sérstaklega á þeim tímum sem við lifum í dag í hinum stafræna heimi og það er svona, við skulum segja, alla vega smá ókyrrð í alþjóðaheiminum. Stafrænn viðnámsþróttur er eitthvað sem er mjög mikilvægt að byggja upp og hér er mjög ítarlegur og langur lagabálkur sem við erum að ræða og stefna að því að innleiða, sem ég held að sé gríðarlega mikilvægt að við gerum og verðum sem mest tilbúin fyrir þessa þróun sem hin stafræna þróun hefur. Eins og hæstv. ráðherra kom inn á áðan er alltaf að verða erfiðara og erfiðara að nota reiðufé í viðskiptum, því minna sem við notum reiðufé og því færri staðir sem eru tilbúnir að takast á við það því meiri er áhættan og verða áhrifin af því að við náum ekki ef það koma einhver vandamál upp við stafræna greiðslumiðlun.

Það er kannski tvennt sem mig langaði að tala einmitt um sem er mikilvægt varðandi þetta. Ég vil byrja á að segja, eins og ég sagði áðan, löggjöfin er gríðarlega mikilvæg en það skiptir máli hvernig hún er útfærð. Alltaf þegar við erum að innleiða eitthvað verðum við að fylgjast með gullhúðuninni, passa að við séum ekki að ganga lengra en nauðsyn krefur og að við séum að laga þetta að íslenskum aðstæðum og íslenskum veruleika. Hér er mjög mikið gert í þessu frumvarpi út á eftirlitið, hvaða reglur eru og hver fer með eftirlitið og svona að tryggja það. Við megum samt ekki gleyma því að jú, eftirlit er mikilvægt, reglurnar eru mikilvægar og að það sé einhver svona gæðastaðall á því að þetta gangi eftir en í þessum stafræna heimi þá er alltaf orðið traust að verða mikilvægara og mikilvægara. Ef einhver er að veita þjónustu þá er það grundvallaratriði að einhver treysti sér til að nýta þjónustu viðkomandi. Það er ekki bara að bjóða lægsta verð, það er: Hvar get ég treyst þessu? Það vill enginn lenda í því að missa upplýsingar frá sér, kerfið virki ekki eða eitthvað. Þá er, má segja, sú atvinnustarfsemi með sama farin fyrir bí. Það er bara þannig. Þannig að við þurfum að finna leið hér til að hafa þetta ekki of íþyngjandi fyrir fyrirtækin, að þau geti áfram þróast og nýtt sitt svigrúm í að þróa öryggið og örugga greiðslumiðlun og annað og við séum ekki að búa til of stórt eftirlitskerfi sem kannski skilar okkur ekkert endilega á betri og öruggari stað. Allt snýst þetta um öryggi hér og að kerfin virki. Það er gríðarlega mikilvægt. Ég er í hv. efnahags- og viðskiptanefnd og mun fylgja þessu eftir og reyna að átta mig betur á því hvernig þessi löggjöf er með þeim hagaðilum sem senda vonandi fleiri inn umsögn um þetta mál heldur en nú er gert í samráðsgáttinni, bara til að sýna það.

Það er eitt sem mig langaði að velta hérna upp af því að hér er náttúrlega Fjármálaeftirlitinu, sem er innan Seðlabankans, falið gríðarlega mikið hlutverk og þá hefur innlend greiðslumiðlun verið mikið í umræðunni undanfarið. Ef sú greiðslumiðlun sem er við lýði í dag fellur niður þá þurfum við að eiga okkar eigin innlendu greiðslumiðlun þannig að ef við missum netsamband þá sé ekki bara öll greiðslumiðlunin í skýinu og bara allt stopp hér. Eins og ég kom inn á áðan, ef reiðufé er hætt í umferð eða búið að draga verulega úr því þá þarf samt greiðslumiðlunin að virka. Þá held ég að við þurfum að hafa svolítið augun á því hvernig við búum til þessa innlendu greiðslumiðlun. Eru einhverjir einkaaðilar eða einhverjir aðilar hérlendis sem eiga einhvern búnað sem er hægt að gera samninga um að nýta eða að séu til staðar ef það þarf innlenda greiðslumiðlun? Eða er rétt, eins og ég held að sé rétt með farið hjá mér að hafi nú þegar, að búa til innlenda greiðslumiðlun innan Seðlabankans? Sá sem á að veita leyfi fyrir greiðslumiðlun og hafa eftirlit með henni og þessum stafræna viðnámsþrótti, er hann líka að fara að búa til innlenda greiðslumiðlun sem gæti mögulega einhvern tímann verið í einhverri samkeppni við aðrar lausnir sem er verið að þróa jafnvel hér á landi?

Ég held að við getum ekki klárað að fara í gegnum þetta mál hér á þinginu án þess raunverulega að taka þetta allt inn í, af því að ég sé það einmitt að það er nefnilega hluti hérna sem er réttur, sem sagt áhættustýring og viðbúnaður. Ég hef talið að það að búa til þessa innlendu greiðslumiðlun væri einmitt áhættustýring og viðbúnaður, að draga úr áhættunni með því að búa til þennan viðbúnað. Því þurfum við að ræða það svolítið einmitt hvernig það er gert. Það má ekki vera að ganga á samkeppnishæfnina eða vera að nota meiri fjármuni í það heldur en nauðsyn krefur. Við þurfum að fara vel með opinbert fé, hið opinbera á ekki að vera í samkeppni við það sem markaðurinn getur leyst af því við verðum að nýta þá peninga frekar í aðrar varnir og vera betur tilbúin. Það er hægt að forgangsraða peningunum betur heldur en í þetta og fjártæknin hefur bara gengið ágætlega hér á landi. Ég held að við eigum mikla möguleika í henni, að þróa hana, og við eigum frekar að ýta undir frekari þróun í íslenskri fjártækni og þá gera umhverfið þannig að hún geti þróað sig enn frekar og þá í þessa öryggisátt sem við erum að tala um hér, hvernig við getum aukið öryggi í stafrænum viðskiptum og þar með aukið þennan viðnámsþrótt sem við erum að tala hér um í dag, viðnámsþrótt fjármálamarkaða, af því að þetta er að sjálfsögðu ein hin stóra ógn sem getur stafað að okkur í dag.

Það hafa alveg komið upp svona smátilvik hér á landi að það falla út þjónustur í smátíma. Ég held að ég muni það rétt, ég man ekki hvað það var sem gerði að verkum að greiðslumiðlun féll niður í einhvern tíma en þá gátu þeir viðskiptavinir sem voru t.d. með Netgíró, þeir sem þurftu að versla í IKEA gátu notað Netgíró til að versla þótt greiðslumiðlunin hefði fallið niður, þannig að það eru alveg til einhverjar lausnir. Ég er ekkert viss um að Netgíró sé ein af þeim en það eru alla vega til fjölbreyttar lausnir og við þurfum þá bara að máta þetta og ég held að hv. efnahags- og viðskiptanefnd þurfi aðeins að velta þessu fyrir sér og mun ég alla vega tryggja að þetta verði tekið upp þar og vonandi getum við þá komið aðeins betur inn á þetta hér þegar við förum í 2. umræðu í þessu máli, að þá verði þessi mál komin betur á hreint. Kannski kemur þetta eitthvað fram í þeim umsögnum sem nefndinni verða sendar, þá getur almenningur skoðað það þar. Þetta er mjög umfangsmikið og ég get alveg viðurkennt það að ég er enginn sérfræðingur í stafrænum lausnum eða í fjármálamörkuðum þannig að maður þarf að setja sig vel inn í þetta og því treysti ég vel á hagaðilana, að þeir hjálpi okkur að kafa ofan í þetta og gefi okkur skýr leiðarljós svo að við getum þá aflað okkur upplýsinga og afgreitt þetta mál á ábyrgan og skilvirkan hátt.

Annars þakka ég bara fyrir góðar umræður, það hafa verið góðar umræður hér um aðra þætti í þessu, og bara minni á það að við þurfum að passa að þetta sé ekki of íþyngjandi fyrir þá sem starfa á stafrænum fjármálamarkaði hér á landi. Við þurfum að tryggja að við séum ekki að setja aukinn kostnað við rekstur fjármálamarkaðar í okkar fámenna en stóra og góða landi af því að það er enginn nema neytandinn sem borgar það. Við þurfum að fara að læra það hér í þessum sal að það er ekki alltaf hægt að segja að fyrirtækin hafi efni á að borga þetta eða geti borgað þetta af því að það sem fyrirtækin borga kemur hvergi nema frá hinum almenna borgara.