stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni fyrir ræðuna. Það er auðvitað gríðarlega mikilvægt að þessir innviðir séu reknir og varðir með sem öruggustum hætti. Það sem hv. þingmaður kom inn á og er kannski svolítið nýr vinkill inn í þessa umræðu er það sem Seðlabankinn og aðilar á markaði eru að undirbúa og bardúsa í tengslum við rafmynt. Eru einhver sjónarmið eins og hv. þingmanni sýnist þetta liggja nú um stundir í frumvarpsdrögunum eða almennt, því að það vill nú þannig til að þetta með einum eða öðrum hætti tengist allt saman, varðandi eftirlitshlutverk og þar fram eftir götunum sem er verið að færa Seðlabankanum eins og rammað er inn með yfirvofandi hækkun eftirlitsgjaldsins vegna þeirra verkefna sem tengjast þessu þingmáli, sem þurfa að koma til skoðunar í tengslum við áform um innlenda rafmynt — innlenda greiðslumiðlun vildi ég sagt hafa, verði hún að veruleika?