156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[18:03]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir andsvarið. Ég skildi hv. þingmann þannig að hann væri að spyrja um innlenda greiðslumiðlun en ekki innlenda rafmynt, en kannski getum við leyst málið með rafmynt. Maður veit ekki hvað tæknin ber í skauti sér og nýsköpunin, ég ætla ekkert að útiloka það. Það er einmitt þetta sem við þurfum svolítið að hafa í huga, af því að hér erum við að tala um að hækka eftirlitsgjaldið, þetta verði kostnaður og annað, að eftirlitsaðilinn þarf að sjálfsögðu að hafa einhverja þekkingu, reynslu og getu til að sinna eftirlitinu og skilja viðfangið sem hann hefur eftirlit með. Hvað varðar stafræna fjármálamarkaði þá er þessi greiðslumiðlun náttúrlega tæknileg og viss þekking þarf að vera í Seðlabankanum sem hefur eftirlitið, en hvort sú þekking eigi að byggjast upp með því að búa til sitt eigið greiðslumiðlunarkerfi dreg ég kannski í efa. Ég held að mikilvægt sé að við horfum á það þegar við fjöllum um þetta frumvarp hvernig hægt er að hafa lögin þannig að þessir öryggisstaðlar sem við erum að setja og þetta eftirlit verði sem mest sjálfvirkt og kalli ekki á mikla yfirbyggingu og að við séum ekki að láta einhverja stofnun byggja upp þekkingu sem er að þróast og grassera þarna úti og nýta hana frekar.