156. löggjafarþing — 26. fundur,  4. apr. 2025.

stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.

261. mál
[18:08]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir góða og mikilvæga spurningu. Hún kannski rammar inn svolítið hvað ég var að fara í máli mínu, að við megum ekki horfa of þröngt á þetta, setja bara nógu strangar reglur og byggja upp nógu mikið eftirlit. Það er kannski ekki það sem vantar í þessu. Þá kem ég inn á það sem ég sagði líka áðan, að þekkingin og reynslan er á markaðnum hjá þeim sem eru að búa til lausnirnar og eru að reka kerfin. Ég held að það sem við þurfum að gera miklu meira af er að leita til þeirra og vinna með þeim að því hvernig við tryggjum öryggi saman. Markmið þeirra númer eitt, tvö og þrjú er að auka traust og virkni á sinni vöru. Þau hafa mjög mikla þekkingu á því og innsýn, langt umfram okkur hjá stjórnvöldum, hvernig eigi að gera það. Því held ég að við þurfum að byggja upp þennan viðnámsþrótt með markaðnum en ekki fara að byggja hann bara upp hjá ríkinu, að ríkið hafi bara eftirlitsskyldu með þessu. Ég held að þetta verði að vera meiri samvinna og vera gæðakerfi sem kemur svolítið sjálfkrafa en ekki einhver eftirlitsstofnun. Ef eitthvað fer úrskeiðis hjá eftirlitsstofnuninni eða hún nær ekki að byggja upp þessa þekkingu þá má ekki gerast eins og hjá bönkunum, að eftirlitsstofnunin og bankarnir fari að keppa um bestu bitana. Við verðum að vinna þetta saman.