stafrænn viðnámsþróttur fjármálamarkaðar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðrik Friðrikssyni kærlega fyrir góðar spurningar og vangaveltur. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta stendur ekki eitt, það er svo margt sem getur haft áhrif á viðnámsþrótt fjármálamarkaða. Það er annars vegar bara greiðsluþjónustan sjálf, hvort hún virki. Það eru varnirnar gagnvart henni, hvort hægt er að brjótast inn í hana eða ekki. Það eru upplýsingarnar sem hún hefur, hvort þær eru öruggar. Svo er það líka bara hvort internetið hér innan lands virki. Hvernig tryggjum við öryggi þess, ljósleiðara eða þráðlausa netsins eða hvað það er? Svo eru það tölvurnar sem keyra greiðslumiðlunina, það er eitt. Síðan er það gagnasambandið við landið. Það er ekkert að ástæðulausu að á alþjóðavettvangi og sérstaklega á vettvangi Norðurlandaráðs, og ég veit að hv. þingmaður þekkir þá umræðu vel sem mikill þátttakandi í utanríkisstjórnmálum, þá köllum við þetta fjölþáttaógnir. Þetta er orðið svo fjölbreytt og það er á svo mörgum stöðum þar sem lítið má út af bregða til að það setji einhverja stóra og mikilvæga innviði heilu samfélaganna úr skorðum eins og við tölum um hér, viðnámsþrótt stafrænna fjármálamarkaða.